BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

Postby pallihelgi » Sat 14. Jul 2012 13:30

Sælir, mig vantar aðstoð. Ég er með BMW 320d 2005, sem ég var að kaupa. Búinn að keyra hann um 1500 km eftir að ég fékk hann. Var að koma úr ferð frá RVK-SELF-RVK-KEF-RVK og lagði bílnum heima hjá mér. Fer svo út eftir 3 tíma og þá kemur bara klikk í startaranum, skipti um hann þá rífur startarinn kolinn frá tengihringnum. Skipti aftur um startara og það sama gerist ekki neitt og það fer að rjúka úr startaranum þegar ég reyni að setja hann í gang. Prófa að ath að taka á sveifarásinni þá er hún alveg pikkföst fer hvortki aftur á bak eða áfram. ATH kvarðan á bílnum sé þá að það er alltof mikil olía á bílnum, svona einum til tveimur lítrum of mikið, hef ekkert sett á hann eftir að ég fékk hann. Getur eh hérna hugsanlega sagt mér hvað getur valdið þessu, því mér finnst skrítið að ég hafi lagt bílnum án þess að finna eh að, hvorki óhljóð eða kraftleysi og svo er mótorinn fastur...
pallihelgi
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 9
Joined: Thu 12. Jul 2012 08:16

Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

Postby Hrannar E. » Sat 14. Jul 2012 18:18

Vatn í olíunni fyrst það er svona mikið á honum ?

Annars er örugglega best fyrir þig að tala við Eðalbíla.
BMW e39 540i 2000
Hrannar E.
Getawaybílstjóri
 
Posts: 595
Joined: Tue 21. Oct 2008 19:45

Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

Postby Einarsss » Sat 14. Jul 2012 18:33

Oftast þegar það heyrist klikk í startaranum en ekkert meira gerist hjá mér þá vantar rafmagn á bílinn.. þeas það er næg spenna til að kveikja ljósin,útvarpið etc etc en ekki nóg til að snúa startaranum.
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

Postby BjarkiHS » Sat 14. Jul 2012 18:36

Einarsss wrote:Oftast þegar það heyrist klikk í startaranum en ekkert meira gerist hjá mér þá vantar rafmagn á bílinn.. þeas það er næg spenna til að kveikja ljósin,útvarpið etc etc en ekki nóg til að snúa startaranum.


Hann segir að hann hafi tekið á sveifarásnum.

En fyrst þú segir að engin óhljóð hafi verið þá finnst mér ótrúlegt að mótorinn sé fastur
Bjarki Steingrímsson.
8253105

Jeremy Clarkson wrote:"Handbuilt" is just another way to say "the doors will come off"
BjarkiHS
Getawaybílstjóri
 
Posts: 981
Joined: Thu 07. Sep 2006 22:08
Location: Ásbrú

Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

Postby Einarsss » Sat 14. Jul 2012 19:45

BjarkiHS wrote:
Einarsss wrote:Oftast þegar það heyrist klikk í startaranum en ekkert meira gerist hjá mér þá vantar rafmagn á bílinn.. þeas það er næg spenna til að kveikja ljósin,útvarpið etc etc en ekki nóg til að snúa startaranum.


Hann segir að hann hafi tekið á sveifarásnum.

En fyrst þú segir að engin óhljóð hafi verið þá finnst mér ótrúlegt að mótorinn sé fastur



úpps.. það fór framhjá mér :oops:
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 3 guests