Page 1 of 1
2006 e90 325i með undarlegt bilanaljós

Posted:
Fri 13. Jul 2012 15:37
by Bjarkig
Bíllinn var búinn að sýna service ljós í svolítinn tíma en ekkert hefur verið gert í því. Núna er hann að sýna rautt ljós af bíl á lyftu, handbremsuljósið er einnig á þó hann sé ekki í handbremsu...
fann þráð um þetta á e90forums en er engu nær þar sem fæstir gátu verið sammála um hvað gæti verið að bílnum. einhver sem er með þetta á hreinu?
Re: 2006 e90 325i með undarlegt bilanaljós

Posted:
Fri 13. Jul 2012 16:17
by gardara
ertu búinn að láta lesa af honum?
Re: 2006 e90 325i með undarlegt bilanaljós

Posted:
Fri 13. Jul 2012 16:37
by Hrannar E.
Farðu með hann í eðalbíla og spjallaðu við Bjarka hann getur sagt þér allt um þetta.
En samtkvæmt manual er verið að segja þér að bremsuklossarnir séu búnir.
Re: 2006 e90 325i með undarlegt bilanaljós

Posted:
Sat 14. Jul 2012 00:50
by Bjarkig
er ekki búinn að láta lesa af honum.
en já takk, ég á ekki til manualið þannig að það var gott að vita ca. í hverju þessi viðvörun felst

Re: 2006 e90 325i með undarlegt bilanaljós

Posted:
Sat 14. Jul 2012 11:39
by Hrannar E.
Bjarkig wrote:er ekki búinn að láta lesa af honum.
en já takk, ég á ekki til manualið þannig að það var gott að vita ca. í hverju þessi viðvörun felst

Þetta var allavega það sem stóð að væri ef ljós kæmi upp að bíllinn væri á lyftu og handbremsuljós á líka.
Vonandi að þetta hjálpi einhvað
Re: 2006 e90 325i með undarlegt bilanaljós

Posted:
Sat 14. Jul 2012 12:29
by Zed III
skella sér til eðalbíla til að láta lesa eða fá þá til að líta á þetta.
aflestur kostar undir 5k og þá færðu að vita um allar mögulegar villur.