Page 1 of 1

BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

PostPosted: Thu 12. Jul 2012 08:23
by pallihelgi
Sælir, er í smá vandræðum, ég er með BMW 320d e90 2005. Bílinn byrjaði á því að fara ekki í gang, það kom bara klikk í startaranum, ég byrjaði á því rífa hann út og það kom í ljós að relay-ið í honum var ónýtt. Skipti um það og prófaði startarann áður en ég setti hann í aftur og hann virkaði flott. Svo þegar ég er búinn að setja hann og ganga frá öllu þá gerist ekki neitt þegar ég reyni að starta bílnum, aðein eh klikk í öryggisboxinu, er búinn að chekka á öllum öryggjum þar öll í lagi. Maður búinn að koma með tölvu hann sér enga bilanakóda á henni.

Svo endilega ef eh hefur hugmynd hvað gæti verið að má hinn sami endilega láta mig hafa hugmyndir eða lausnir:)

Fyrrifram þökk

Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

PostPosted: Thu 12. Jul 2012 10:05
by IvanAnders
Svo við byrjum á byrjuninni, er alveg örugglega nægur straumur til staðar??
Búinn að mæla að startaranum??

Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

PostPosted: Thu 12. Jul 2012 10:29
by pallihelgi
Sælir, já geymirinn er fullur, var einmitt búinn að hlaða hann.

Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

PostPosted: Thu 12. Jul 2012 12:35
by Hrannar E.
Athugaðu hvernig kaplarnir frá geyminum í skottinu líta út. Lenti í svona með minn og þar sem kaplarnir koma útúr bílnum var allt að fara í sundur þar og mikið sambandsleysi.

Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

PostPosted: Thu 12. Jul 2012 13:32
by pallihelgi
Kaplarnir líta vel út, eru einsog nýjir. Það er rafmagn í öllu í bílnum, útvarp, rúður, miðstöð virkar fínt og öll ljós.

Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

PostPosted: Thu 12. Jul 2012 13:34
by pallihelgi
Frábært þjónusta hjá BL, tæknimaðurinn sem sér um BMW wer í fríi þannig að hann kemst ekkert inn fyrren um mánaðarmótin.

PostPosted: Thu 12. Jul 2012 13:49
by gardara
prófaðu eðalbíla

Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

PostPosted: Thu 12. Jul 2012 18:34
by Hrannar E.
Leit líka allt voða vel út og allt virkaði nema að starta bílnum. Þetta var startkapall hjá mér þessi rauði sveri sá hvernig það var þegar ég tók geyminn úr. Á samskeytunum þar sem hann fer útúr skottinu og undir bíl. Tjékkaðu á því ef hann er í góðu þar (járnin sem tengjast saman) þá er þetta líklegast einhvað annað.

Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

PostPosted: Thu 12. Jul 2012 20:08
by IngóJP
Ég lennti í þessu sama. Reif startarann aftur úr prufaði hann og hann var alveg að virka rétt. Pússaði létt yfir með sandpappír þar sem startarinn og blokkinn koma saman þá rauk druslan í gang

Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

PostPosted: Thu 12. Jul 2012 20:30
by pallihelgi
Takk fyrir þetta strákar, ætla að prufa þetta. Læt ykkur vita hvernig þetta endar:)

Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang

PostPosted: Fri 13. Jul 2012 19:42
by pallihelgi
Sælir, ekki var það startarinn. Mótorinn er fastur. Keyrði frá RVK til SELF. og KEF til RVK, lagði bílnum heima hjá mér engin aukahljóð eða neitt. Ætlaði svo á honum 2 tímum eftir að ég kem heim þá startaði hann ekki. Opnaði startarann og þá var hann búinn að rífa öll kolin frá festingunni, setti önnur kol í og reyndi aftur aftur það sama reif kolin frá. Prófaði að ath mótorinn þá er hann pikkfastur. Veit eh um teikningar og mótornum og hvar ég get fengið allar upplýsingar um hann hvað gæti hafi gerst?