Sælir...
Fyrir nokkru síðan fór mig að langa að spila eitthvað annað en geisladiska og útvarp í bílnum og fór að velta fyrir mér möguleikana mína. Fyrst hugsaði ég að kaupa mér þriðja aðila geilsaspilara með USB tengi fyrir iPod eða minnislykil sem spilapi MP3. Annað sem mér datt í hug að setja carputer í bílinn með snertiskjá frammí. Ég hætti fljótt við þær hugmyndir vegna þess að mig langaði að halda original looki á bílnum að innanverðu. Síðan rakst ég á
Bavarian Soundwerks á netinu.
Þeir eru að selja nokkur mismunandi iPod tengi, eitt frá þeim sjálfum, sem heitir Soundplicity, og hin frá DICE. Eftir að hafa skoðað þetta fram og tilbaka á síðunni hjá þeim, þá ákvað ég bara að taka þeirra tengi því það var ódýrast og ég þurfti ekki meira en iPod tengið sjálft. Þetta átti að vera þvílíkt auðvelt í uppsetningu, bara tengt við CD-changer snúrurnar sem eru í skottinu á öllum BMW E46, þannig að ég sló til.
Þegar tengið kom og ég ætlaði að fara að setja það í bílinn fann ég engar CD-changer snúrur og fór að gramsa meira á netinu og spjallaði við Bjarka í
Eðalbílum. Þá sá ég að þetta var í öllum USA-spec E46, en var optional í Euro bílum. Það sem Bavarian Soundwerks er Amerískt fyrirtæki, þá datt þeim ekki í hug að minnast á það hjá sér.
Eftir meira spjall við Bjarka, þá komust við að leið til að tengja þetta og ætla ég að sýna það hér í myndum.
1. Þetta er tækið sjálft. Það koma tvær snúrur með þessu. Ein til að tengja við CD-changer prewiring snúrurnar sem eiga að vera í skottinu og hin sem fer í iPodinn.
2. Það þarf að panta snúru hjá IH / B&L. Vörunúmerið á henni er
61 12 6 904 074. Þetta er styttri útgafan af annari CD-changer snúrunni og tengist í stærra plöggið á snúrunni frá Bavarian Soundwerks og svo aftan í útvarpið á bílnum.
Það er fint að minnast á að það er aðeins hægt að nota þessa snúru í bílum með Business CD eða Professional CD tæki. Hér er mynd.
3. Hitt plöggið á Bavarian Soundwerks snúrunni er hér. Þetta er fyrir power, jörð og iBus, en litirnir á vírunum samsvara ekki litum á vírum í E46. Litirnir eru svartur, gulur/appelsínugulur á einum pinna, og brúnn.
4. Fór til Bjarka og fékk að plögga þessu í tengi í USA-spec bíl sem þeir eiga og sá hvernig þetta á að tengjast í bílinn.
Svartur -> Brúnn (jórð)
Gulur/appelsúnugulur -> Grænn m/rauðri línu (power á stöðu 2 í sviss)
Brúnn -> Gulur og hvítur m/rauðri rönd (iBus)
5. Núna var tvennt í stöðunni. Annað hvort að panta karla tengi fyrir svona þriggja pinna plögg í IH / B&L og bíða eftir því, eða bara skera plöggið af og tengja lengri víra við til að tengja beint inná bílinn.
Ég gerði seinni möguleikann því að ég nennti ekki að bíða eftir karla tenginu.
Grænt = power
Brúnt = jörð
Gult = iBus
6. Næst þurti að taka hanskahólfið úr til að komast á bakvið öryggisboxið.
Ég er ekki með mynd af því, en notaði
þetta vídeo til að komast að því hvernig átti að gera það.
7. Þegar komið var bakvið öryggisboxið notaði ég straumþjófa til að tengja mína víra við bílinn. Ég tengdi power við fjólubláa m/ hvítri rönd í staðinn fyrir græna m/ rauðri rönd vegna þess að ég vildi nota sama og útvarpið (power á stöðu 1 á sviss). Ég tengdi powerið líka inn á sama öryggi og útvarpið (nr 7 í þessu tilfelli).
Ekki tengja snúruna við Soundplicity boxið strax! Það gerist á eftir! 

8. Núna þarf að taka útvarpið úr. Það er mjög auðvelt. Fyrst þarf að taka trimmið af. Það er í tveimur pörtum. Fyrsti, sem er farþega megin, er festur með fjórum löngum pinnum. Seinni, sem er fyrir ofan útvarpið er fest með einum pinna sem er á milli útvarpsins og svissins.


9. Það eru tvær skrúfur sem halda útvarpinu á sínum stað, ein sitthvoru megin við útvarpið. Síðan er útvarpið bara dregið úr.
10. Síðan þræðirðu snúruna á bakvið útvarpið svo að það komi aftan við hanskahólfið og stingur því í samband við útvarpið.

11. Áður en ég setti útvarpið í, þá akvað ég að þræða iPod snúruna út í gegnum sólgleraugnahólfið svo að iPodin geti bara geymst þar inni. Sólgleraugnahólfið er bara togað út. Ég þurfti að setja gat á það að ofanverðu til að geta sett snúruna í gegn.

12. Núna tengirru snúruna sem kemur úr útvarpinu í Bavarian Soundwerks snúruna og tengir síðan þá snúru í tækið. Einnig tengirru iPod snúruna hinu megin á Soundplicity græjunni. Ég kom tækinu fyrir í
hólf sem eru á bakvið hanskahólfið og gekk svo frá öllu snyrtilega. Ég er með gamlan iPod Video 60Gb og þetta svínvirkar.
Ég vona að þetta geti hjálpað einhverjum.