Page 1 of 1
318i 2003 hikstar

Posted:
Fri 08. Jun 2012 23:28
by sveinbjorn
Sælir
bílinn tók upp á því hjá mér að fara að hiksta þegar ég stoppaði á ljósum. Þegar ég hægi niður er búinn að standa í smá stund á sama stað, þá er eins og honum svelgist á, og allt hikstar og skelfur. Það er þó fyrr að lagast finnst mér ef ég set sjálfskiptinguna í N úr D.
Mér var bent á að þetta væru kertin, sem ég skipti um, en hann er enn að láta svona -bara ekki jafn mikið.
Hafið þið hugmynd um hvert vandamálið sé?
Re: 318i 2003 hikstar

Posted:
Sat 09. Jun 2012 20:08
by crashed
kerta þræðir eða stífluð bensín sía
Re: 318i 2003 hikstar

Posted:
Sun 10. Jun 2012 17:01
by Lindemann
vakúm leki mögulega
Re: 318i 2003 hikstar

Posted:
Mon 11. Jun 2012 12:34
by Raggi_K
Gæti þetta ekki verið loftflæðiskynjarinn? Prófaðu að taka hann úr sambandi og athugaðu hvort gangurinn breytist eitthvað. Það gæti dugað að hreinsa hann bara ef það er hann sem er að stríða þér

Re: 318i 2003 hikstar

Posted:
Tue 12. Jun 2012 20:22
by slapi
Þessi mótor er mjög viðkvæmur fyrir fölsku lofti sem er asnalegt en þar sem ekkert vakúm er í soggreininni.
Langbest að láta lesa hann til að skoða málin hvað þða getur verið.
Bilaður loftflæðinemi er algjörlega óheyrt í þessum tíkum allaveganna. Rifa á öndunarslöngu eða laust olíuáfyllingarlok jafnvel en ekkert hægt að segja nema með aflestri.
Re: 318i 2003 hikstar

Posted:
Wed 13. Jun 2012 23:42
by sveinbjorn
Takk fyrir þetta... það er kannski best að láta lesa af honum.
Mér finnst reyndar merkilegt að skiptunum sem þetta gerist hafi fækkað eftir að ég skipti um kertin, ef þetta er þeas rifa á einhverri slöngu eða bilaður flæðinemi..
Þegar þú talar um kertaþræði, ertu að meina hólkinn fyrir ofan kertið - ignition coil?
Re: 318i 2003 hikstar

Posted:
Thu 14. Jun 2012 15:13
by Raggi_K
Já það eru kertaþræðirnir
