Fyrst ég er ekki búinn að fá staðfestingar mail eftir 2 vikna bið þá fæ aðgang félaga míns lánaðann.
Þannig er nú málið að ég keypti mér e30 sem búið var að swappa m50b25 mótor í. Ég keyri hann smá en svo drepur hann á sér. Við ýtum honum smá spöl svo fer hann aftur í gang. Svo drepur hann aftur á sér eftir smá tíma og fer þá ekki í gang í 2 daga, drögum hann upp í skúr og þá fer hann aftur í gang í smá tíma en drepur svo á sér.
Hann fær bensín og neista á öllum. Þannig hefur einhver hugmynd um hvað þetta gæti verið og hvað ég ætti að kíkja á?

