Page 1 of 1

Er hægt að gera við þessar sprungur í framljósinu?

PostPosted: Tue 08. May 2012 18:44
by Throstur
Sælir,

Er með leiðinda sprungur í öðru framljósinu hjá mér (Hella facelift Xenon ljós)
Einhver sem hefur hugmynd um hvort það sé hægt að gera við svona og hvar þá?

Image
Image

Re: Er hægt að gera við þessar sprungur í framljósinu?

PostPosted: Tue 08. May 2012 19:56
by jens
Mörg bifreiðaverkstæði eru farin að gera við litlar sprungur í framrúðum með að hita þær, myndi kynna mér það hjá t.d tryggingarfélaginu þínu.

Re: Er hægt að gera við þessar sprungur í framljósinu?

PostPosted: Wed 09. May 2012 06:22
by Orri Þorkell

Re: Er hægt að gera við þessar sprungur í framljósinu?

PostPosted: Wed 09. May 2012 08:47
by Zed III
Orri Þorkell wrote:meguiars headlight restoration kit
viewtopic.php?f=7&t=49267


Dugar varla á þessar sprungur.

Re: Er hægt að gera við þessar sprungur í framljósinu?

PostPosted: Wed 09. May 2012 15:06
by Throstur
Jamm, þetta eru dýpri sprungur, það á ekki eftir að duga að massa.
Er hræddur um að það sé erfitt að gera við þetta :cry:

En ég á eftir að tékka á réttinga og bílrúðuverkstæðum, og já hjá tryggingafélaginu, maður tapar ekki á því að spyrja :)

Re: Er hægt að gera við þessar sprungur í framljósinu?

PostPosted: Thu 10. May 2012 06:26
by Orri Þorkell
er þetta alveg í gegn? geturu ekki notað sandpappir og farið svo í fínni og fínni og svo massað? það er hægt að kaupa plöstin sér líka í þessi ljós

Re: Er hægt að gera við þessar sprungur í framljósinu?

PostPosted: Tue 15. May 2012 23:41
by billi90
ljósin voru svona hjá mér....prufaði að massa þetta enn ekkert gerðist...prufaði reyndar ekki að massa ljósin að innan...þetta myndast oftast innan á glerinu...endaði með að skipta um ljós hjá mér...hlýtur að geta fengið bara nýtt gler í það

Re: Er hægt að gera við þessar sprungur í framljósinu?

PostPosted: Thu 17. May 2012 11:54
by ppp
Þetta er innan á plastinu ef þetta er eins og sprungurnar sem ég sá, sem að virðist vera.

Einn gamall bílasprautari sagði að þetta væri bara einhver galli í þessum blessuðu bmw ljósum, s.s. að þegar sólin bakaði þau þá gætu svona sprungur myndast innan í þeim.

Re: Er hægt að gera við þessar sprungur í framljósinu?

PostPosted: Sun 20. May 2012 00:51
by x5power
gerist yfirleitt þegar menn setja of sterkar perur í ljósin!

Re: Er hægt að gera við þessar sprungur í framljósinu?

PostPosted: Sun 20. May 2012 02:39
by Maggi B
Því miður ekki hægt, eins og x5 sagði of sterkar perur, sem eru of heitar og skemma plastið

Re: Er hægt að gera við þessar sprungur í framljósinu?

PostPosted: Sun 20. May 2012 21:45
by Throstur
Jamm, þessar sprungur koma innan frá og ná næstum í gegn.
Sennilega ekkert annað að gera en að panta nýtt plast í þetta

Takk fyrir uppástungurnar :)