bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Ég var að baka...
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=5647
Page 1 of 3

Author:  Svezel [ Sat 24. Apr 2004 23:39 ]
Post subject:  Ég var að baka...

... framljósin mín :hmm:

Jæja ég tók mig til í kvöld og ákvað loks að fara í ódýru "Karglas" breytinguna sem ta hafði áður póstað link á hér á spjallinu. Í gær fór ég því í ÁG og keypti mér silfraðar stefnuljósaperur til að hafa allt klárt.

Jæja fyrst var að losa allar perur og tengingar í ljósin en það tók ekki langan tíma þar sem allt er svo patent og sniðugt í BMW :wink: . Svo var að mæla fjarlægðirnar á ljósunum upp á 1/10 úr mm til að geta stillt þetta rétt aftur á eftir, því ekki vill maður þurfa að fara í ljósastillingu á eftir.

Nú losaði ég 8mm boltana sem halda ljósinu en þeir eru 4 á hverju ljósi, tveir ofan á
Image
einn c.a. bakvið stefnuljós
Image
og einn alveg við vantskassann.
Image

Þetta reyndist lítið mál með Bosch skrúfjárns-skrallinu sem til er á heimilinu og ég mæli eindregið með því í ýmis verk.
Image

Þegar ég var búinn að þessu báðum megin og losa allar járnspennurnar á ljósunum þá var allt klárt til að fara að hita ofninn.
Image

Ofninn var settur á 100°C blástur og hvert ljós haft inni í 10-15mín
Image

Svo þegar ljósið var búið að vera inni í þennan tíma var lítið mál að spenna það í sundur með flötu skrjúfjárni og taka gulu stefnuljósaglerin úr
Image

Nú var bara að setja ljósið aftur saman, setja járnklemmurnar aftur á og baka svo ljósin aftur á saman hita í 10mín. Ég þurfti reyndar að baka fyrra ljósið tvisvar því ég tók eftir því að linsurnar yfir aðaljósunum voru skakkar í eftir að ég var búinn að klemma það aftur saman þ.a. það var ekkert annað að gera en að endurtaka leikinn á það ljós. Það var alveg passlegur tími að baka eitt ljós meðan maður losaði hitt í sundur, tók gula glerið úr og lokaði því aftur.

Þegar ég var búinn að baka bæði ljosin aftur þá var bara að bíða og leyfa þeim að kólna áður en ég setti þau aftur í.
Image

Ég skemmdi reyndar annað ljósið aðeins þegar ég ætlaði að fara að þrífa klístur af króminu í linsunni fyrir framan háa geislann, því krómið losnaði af. Þetta sést ekkert úr fjarlægð en samt sem áður smá klúður sem maður hefði getað verið án, en maður lærir af þessu. Reyni líklega að redda mér notuðu ljósi í sumar ef ebay.
Image

Nú var bara að endurtaka leikinn og skrúfa ljósin aftur í ásamt því að tengja. Svo þurfti að stilla ljósin aftur því stilliskrúfurnar höfðu eitthvað gengið til við losunina en það tók ekki langan tíma með skífumáli, skrúfjárni og örlítilli þolinmæði.

Nú var allt klárt og munurinn töluverður. Ég er bara mjög sáttur með þetta en held að ég þurfi nú að kaupa aðrar stefnuljósaperur því mér þykja þessar full daufar, þetta eru líklega einhverjar über svalar rice-perur eða eitthvað :wink: Hér er svo munurinn.

Fyrir
Image

eftir
Image
Image

Þetta var bara gaman og ekkert mál með réttum græjum og örlítilli þolinmæði. Ég var samt frekar stressaður þegar ég var að losa í sundur fyrra ljósið og hafði lítinn tíma til að taka myndir meðan á því stóð. Tíminn á milli var samt alveg fínn og heildartíminn á verkefninu ætti ekki að vera meira en svona 75mín þótt þetta hafi tekið mig allt í allt rúma 2 tíma. Ég gaf mér bara nægan tíma í þetta og notaði tækifærið og losaði nokkrar hlífar bakvið ljósið bílstjóramegin sem ekki var þörf á lengur eftir loftsíuskipti.

Author:  bjahja [ Sat 24. Apr 2004 23:46 ]
Post subject: 

Þetta kemur mjög vel út maður, glæsilegt :D

Author:  Benzari [ Sat 24. Apr 2004 23:47 ]
Post subject: 

Well done.

Þá eru það stuðarastefnuljósin næst :lol: Hvað kosta svoleiðis glær :?:

Author:  saemi [ Sat 24. Apr 2004 23:47 ]
Post subject: 

Kúl kúl.

Vel documentað!!! Til fyrirmyndar alveg.

:P

Author:  oskard [ Sat 24. Apr 2004 23:48 ]
Post subject: 

mér finnst svo leiðinlegt þegar fólk tekur fallegu appelsínugulu ljósin sín úr :cry:

Author:  Gunni [ Sat 24. Apr 2004 23:49 ]
Post subject: 

:clap:

Þetta er algjör snilld Sveinbjörn!!! Þetta er líka geðveikt flott, klarglas rúlar 8)

Ég var búinn að segja þér að ég myndi hlæja endalaust ef þú mundir baka ljósin þín. Ég tek það til baka, þetta var ekkert fyndið, bara kúl!

Author:  hlynurst [ Sat 24. Apr 2004 23:54 ]
Post subject: 

Djöfull er þetta flott hjá þér maður! :D

Author:  Svezel [ Sun 25. Apr 2004 00:07 ]
Post subject: 

Takk dudes, ég er bara mjög sáttur með þetta og það sérstaklega miðað við kostnað :wink:. Hefði samt átt að vera búinn að hræra í köku svo maður hefði getað bakað köku í leiðinni til borða á eftir :lol:

Já svo er að panta stuðaraljósin og hliðarstefnuljósin af ebay, það á ekki að kosta nema svona 5þús kr.

Author:  Heizzi [ Sun 25. Apr 2004 00:13 ]
Post subject: 

bara hardcore að þora þessu, virkilega flott

Author:  benzboy [ Sun 25. Apr 2004 02:05 ]
Post subject: 

Flottur, virkilega töff að láta verða af þessu

Author:  Aron [ Sun 25. Apr 2004 02:17 ]
Post subject: 

Glæsilegt, þú gætir orðið næsti Jói Fel

Author:  BMW3 [ Sun 25. Apr 2004 03:45 ]
Post subject: 

þetta er mjög flott hjá þér og kemur svakalega vel út hjá þér og mjög fínar leiðbeiningar hjá þér. :wink:

Author:  jth [ Sun 25. Apr 2004 04:09 ]
Post subject: 

Hreinasta snilld - rosalegur munur! Framsvipurinn mikið ferskari - og ekki var hann slæmur fyrir! Congrats 8)

Author:  fart [ Sun 25. Apr 2004 07:51 ]
Post subject: 

Magnað..

Author:  bebecar [ Sun 25. Apr 2004 10:26 ]
Post subject: 

Já, MAGNAÐ!

Og sérstaklega vel documentað, kemur líka vel út 8)

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/