Page 1 of 1

Kostnaður við stangarleguskipti í M20?

PostPosted: Sun 22. Apr 2012 14:52
by srr
Ég lenti í því að það fór olíudælan hjá mér í m20b27 og það leiddi af sér að fór að heyrast í
stangarlegum.
Bíllinn fór í gang eftir að ég leyfði honum að kólna, sem þýðir að mótor snýst og fer í gang.
Heyrist samt í stangarlegum svo ég drap strax á honum og hef ekki gangsett hann síðan.

Mig langaði að forvitnast hjá ykkur fróðari mönnum um málið,,,,hvað gæti verið ca kostnaður við að skipta um legurnar.

Hvað þarf að skipta um í leiðinni fyrir utan það augljósa,,,,,olíudælu, stangarlegur og pönnupakkningu t.d.

Hvaða vinna felst í ferlinu,,,,ef ég myndi rífa mótor í sundur og skila af mér blokkinni til fagaðila sem myndi vinna verkið t.d.
Hvaða kostnaður gæti leynst í þessari aðgerð ?

Re: Kostnaður við stangarleguskipti í M20?

PostPosted: Sun 22. Apr 2012 17:20
by ingo_GT
Hef skift um stángarlegur og höfulegur í sr20de minnir að kostnaðurinn hafi verið í kringum 70 þús.

Lett kistufell panta legurnar og renna dótið.

Ætli þetta sje ekki einhvað svipað verð á m20.

Re: Kostnaður við stangarleguskipti í M20?

PostPosted: Sun 22. Apr 2012 21:15
by gardara
Byrjar á að rúlla með sveifarásinn upp í kistufell og lætur þá mæla hann og meta, hvort þurfi að renna úr honum eða ekki. Eftir það ferðu svo og pantar legur, í standard stærð eða yfirstærð ef það er búið að renna ásinn.

Samkvæmt pelicanparts þá virðast það vera sömu stangarlegur í M20 og M50.
http://www.pelicanparts.com/cgi-bin/sma ... 1991-95%29
Verð: 44$


Svo þarftu nýja stangarbolta þar sem þetta eru teygjuboltar
http://www.pelicanparts.com/cgi-bin/sma ... %2C%20Each
Verð = 9.5*8 = 76$


Legur: 44$
Boltar: 76$
= Samtals 120$
Sending 43$
= Samtals 163$ = 21000kr
+ 25.5% vsk
= 26355kr

Olíudælan sé ég svo að kostar um 200$ og pönnupakkningin um 6$ á pelicanparts. Og svo er náttúrulega spurning um að skipta um höfuðlegur ef ásinn eða höfuðlegurnar eru illa farnar.

Re: Kostnaður við stangarleguskipti í M20?

PostPosted: Sun 22. Apr 2012 21:19
by Axel Jóhann
Legurnar kosta 20k í kistufelli og það er ekkert mál að græja þetta. :))