Page 1 of 1
Hurðarsílendrar

Posted:
Mon 02. Apr 2012 21:09
by jens
Langar að vita hvort menn kunni skothelt ráð til að liðka upp sílendra í hurðum.
Búin að vera með þetta í höndunum í allan dag, búin að prófa WD40, riðolíu, olíu með teflon og búin að hita hann líka ??????
Re: Hurðarsílendrar

Posted:
Mon 02. Apr 2012 23:42
by Axel Jóhann
Held það þurfi að rífa hann i sundur og endurraða honum uppá nýtt
Re: Hurðarsílendrar

Posted:
Tue 03. Apr 2012 00:01
by jens
Axel Jóhann wrote:Held það þurfi að rífa hann i sundur og endurraða honum uppá nýtt
Hefur þú gert það, langar mest til þess en treysti mér ekki. Hvernig er þetta tekið í sundur ?
Re: Hurðarsílendrar

Posted:
Tue 03. Apr 2012 00:46
by Axel Jóhann
ég hef ekki gert það, en ég hef reynt en aldrei náð honum í sundur, þetta er leiðindadót, ég mæli með neyðarþjónustunni á laugarvegi.
Re: Hurðarsílendrar

Posted:
Tue 03. Apr 2012 09:00
by Einarsss
Getur líka keypt sett frá bmw til að gera lásinn eins og nýjan með að endurraða honum með nýjum íhlutum, svo eru til DIY á netinu hvernig á að gera þetta

Re: Hurðarsílendrar

Posted:
Tue 03. Apr 2012 09:04
by jens
Það hljómar sem framtíðarlausn, hef tekið ASSA í sundur, breytt og endurraðað en þetta er svolítið snúnara að taka í sundur.
Þakka góða hugmynd og ætla að skoða þetta.
Re: Hurðarsílendrar

Posted:
Tue 03. Apr 2012 18:54
by jens
Jæja ég ákvað að taka þetta í sundur og var þetta allt gróið fast svo að þegar þetta hætti að virka þá er ekkert annað í stöðunni.
Til verksins þarf ( 2.5mm rörasplitti ef það gamla skemmist ) úrrek 2.5mm, lítinn hamar og fullt af olíu og mjög fínan sandpappir, nauðsynlegt er að hafa lykilinn í sílendrinum þegar hann er dreginn út.
Þegar ég hafði tekið allt í sundur komst ég að því að þetta er ekki oem sílender og lykillinn passaði þar með ekki, en ég breytti því svo nú
virkar allt.
Re: Hurðarsílendrar

Posted:
Tue 03. Apr 2012 19:09
by ömmudriver
Ég þarf einmitt að fara að taka læsingarnar í gegn í blæjunni hjá mér enda er ég með einn lykil sem gengur að svissinum og farþegahurðinni og einn fyrir skottlokið. Læsingin í bílstjórahurðinni er aðeins virk innan frá og samlæsingarnar eru óvirkar eftir að ég fjarlægði samlæsingarmótorinn úr farþegahurðinni en hún var föst í lás þegar ég kaupi bílinn og svo var enginn samlæsingarmótor né lykilsylender í bílstjórahurðinni

Re: Hurðarsílendrar

Posted:
Wed 04. Apr 2012 21:58
by jens
Það er hægt að breyta t.d sílendrinum í skottinu og fá bara einhvern sílender í bílstjórahurðina og breyta þeim fyrir lykilinn hjá þér.
Re: Hurðarsílendrar

Posted:
Wed 04. Apr 2012 23:19
by ömmudriver
jens wrote:Það er hægt að breyta t.d sílendrinum í skottinu og fá bara einhvern sílender í bílstjórahurðina og breyta þeim fyrir lykilinn hjá þér.
Já ég veit af því enda raðaði ég saman læsingunni í hanskahólfinu eftir lyklinum að svissinum

Re: Hurðarsílendrar

Posted:
Thu 05. Apr 2012 00:10
by jens
ömmudriver wrote:jens wrote:Það er hægt að breyta t.d sílendrinum í skottinu og fá bara einhvern sílender í bílstjórahurðina og breyta þeim fyrir lykilinn hjá þér.
Já ég veit af því enda raðaði ég saman læsingunni í hanskahólfinu eftir lyklinum að svissinum

