Sælir.
Ég kíkti á minn gamla 320 bíl áðan fyrir vin minn sem keypti hann af mér og sá þá að hann er að smita olíu sem virðist koma neðarlega hægramegin frá mótornum og dropar niðrá pústgreinina.
Því fylgir svo þessi frábæri olíubruni og lykt og allur pakkinn.
Þetta er í örlitlu magni og átti ég frekar erfitt með að sjá hvaðan þetta kæmi.
Ekki langt síðan að ég skipti um ventlalokspakkningu og virðist allt þurrt þar í kring.
Einnig virðist ekkert smit í kringum olíukvarða enda er hann vinstra megin.
Hvaðan mynduð þið halda að lekinn gæti komið ?
Gæti verið að heddpakkning sé rifin og olía sé að smitast meðfram henni ?
Bíllinn hitnar líka bara 1/3 en ekki uppí helming eins og gerist yfirleitt.
Það er náttúrulega möguleiki á að vatnslásinn sé fastur opinn sem sé að valda því.
Miðstöðin hitnar eðlilega.
Það vantaði tæpan líter á vatnskassann.
Væri gott að fá ykkar álit á þessu, ekkert virtist athugarvert við gang bílsins, útblástur né kraft.
Aðalspurningin er hvað gæti verið að valda olíusmiti þarna hægramegin frekar neðarlega við mótorinn.




