Page 1 of 1

Slitin tímakeðja á M50? (Myndir 1. apríl)

PostPosted: Fri 23. Mar 2012 23:58
by Saxi
Ég lenti í því áðan að bíllinn drap á sér. Hann gerði það á mjög ódramatískan hátt en þó með greinanlegum smelli. Ég stoppaði og reyndi að starta en heyri þá ekkert nema í startaranum. Sveifarásinn snýst þannig að mig grunar að tímakeðjan mín hafi slitnað :shock:

Eitthvað annað sem gæti verið í stöðunni?

Ef þetta er keðjan, við hverju má ég búast þegar ég opna mótorinn, hefur einhver séð m50 eftir svona rugl?

Update:

Jæja, fyrsta apríl er að komast mynd á það hvernig umhorfs er þarna ofan í.

Eitthvað laust sem á að vera fast. Teip á það.

Image

Image

Image

Ég þarf eitthvað að kafa dýpra til að finna hvaðan þetta brot kom :shock:

kv.
Egill

Re: Slitin tímakeðja á M50?

PostPosted: Sat 24. Mar 2012 05:23
by Danni
:shock: Vonandi er það ekki keðjan!

En til að komast að því er held ég best að taka viftuspaðan af, síðan ventlalokið og kertin og snúa sveifarásnum með skralli. Veit ekki alveg hvað það er stór ró framaná M50, en hún er í sveifaráshjólinu fremst á mótornum. Skoðaðu líka kertin, ef að eitt eða fleyri eru eitthvað skemmd þá er eitthvað mikið að þarna inní.

Ef að mótorinn snýst smooth nokkra hringi og keðjan snýst með geturðu útilokað keðjuna.

Vonandi er þetta ekkert stórvægilegt, en ef þetta er eitthvað mikið vona ég að þér gengur vel að gera við það! Þetta er of fallegur bíll til að enda í einhverju rugli eins og að standa í mörg ár eða eitthvað þannig.

Re: Slitin tímakeðja á M50?

PostPosted: Sat 24. Mar 2012 05:56
by gardara
Getur þetta ekki verið olíudælan kapútt?

Re: Slitin tímakeðja á M50?

PostPosted: Sat 24. Mar 2012 07:10
by Saxi
Já hann stendur vonandi ekki lengi greyið, ég þarf að nota hann :-)

Opna þetta og athuga málið á mánudag. Ég reyni svo bara að fá annan mótor í hann ef ekki vill betur.

Helvíti fúlt að koma þessari vél ekki yfir 300.000 km. Stóð í 299.034 km :p

kv.

Re: Slitin tímakeðja á M50?

PostPosted: Sat 24. Mar 2012 10:02
by slapi
Þeir hafa slitið tíma keðjuna þessir mótorar og beygja ventlana.

Re: Slitin tímakeðja á M50?

PostPosted: Sat 24. Mar 2012 10:09
by IvanAnders
Enda eru 250.000km+ og 20 ár+ Kannski alveg nóg fyrir keðju og strekkjara....

Skil ekki að menn séu ekki duglegri við að henda keðju í þetta.

Re: Slitin tímakeðja á M50?

PostPosted: Sat 24. Mar 2012 15:08
by Danni
Ég hélt að tímakeðjur væru þannig að það byrjaði að skrölta í þeim áður en þær gefa sig alveg.

Re: Slitin tímakeðja á M50?

PostPosted: Sat 24. Mar 2012 17:36
by sosupabbi
Danni wrote:Ég hélt að tímakeðjur væru þannig að það byrjaði að skrölta í þeim áður en þær gefa sig alveg.

Ég hélt það einmitt líka en þetta kom fyrir hjá félaga mínum sem átti E34 525(BE-420) og þá fór keðjan með smelli án þess að gera einhver boð á undan sér.

Re: Slitin tímakeðja á M50?

PostPosted: Sat 24. Mar 2012 21:40
by Saxi
Já hún hélt alveg kjafti þessi þangað til hún fór (ég geri ráð fyrir því þar til annað kemur í ljós)

Veit sossum alveg upp á mig skömmina þar sem ég hef oft velt því fyrir mér hvort ekki væri ráð að skipta um keðju á þetta mikið eknum bíl.

Því fer sem fer. En mig vantar allavega vél. Ef einhver veit um vél handa mér þá má endilega benda mér á hana. Það mætti þess vegna alveg vera eitthvað spennandi swap.

kv.
Egill

Re: Slitin tímakeðja á M50?

PostPosted: Sun 25. Mar 2012 04:49
by ömmudriver
Hvað er það sem að skemmist í M50 þegar tímakeðjan slitnar?

Re: Slitin tímakeðja á M50?

PostPosted: Sun 25. Mar 2012 04:57
by Axel Jóhann
Ventlar og jafnvel stimplar líka. :(

Re: Slitin tímakeðja á M50? (Myndir)

PostPosted: Sun 01. Apr 2012 22:25
by Saxi
Öppdeit og myndir í fyrsta pósti.

Re: Slitin tímakeðja á M50? (Myndir 1. apríl)

PostPosted: Mon 02. Apr 2012 04:08
by Danni
Það vantar allavega keðjuna sem tengir neðri og eftir partinn saman!

Síðan sjást bara fjórir stimplar af sex en þeir sem sjást virðast alveg vera í lagi.

Hvernig litu hinir tveir út? Sem og ventlarnir og neðri parturinn af heddinu?