Page 1 of 2

Gangtruflanir á 323i, eftir m50 manifold swap.

PostPosted: Tue 20. Mar 2012 22:31
by zodiac25
Eins og segir í titlinum þá er bíllinn byrjaður að ganga mjög gróft í hægagangi og drepur á sér ef ég stoppa á ljósum, þ.e.a.s þegar ég sleppi bensíngjöfinni, annars er bíllinn mjög góður í venjulegum akstri og kokar ekkert.

Ég fylgdi öllum leiðbeinigunum á þessum þráð, varðandi swappið: http://www.emotors.ca/Articles/40.aspx

Ég las þráðin aðeins betur og kom þá í ljós að ég hafði fest vitlausan skynjara, IAT (OBD I) skynjaran á M50 manifoldið. En IAT (OBD II) skynjarin átti að fara þar. Ég færði þá (OBD II) skynjaran á réttan stað. Eftir það byrjaði bíllinn að ganga aðeins betur í hægagangi, en hann heldur samt áfram að drepa á sér, ef bensíngjöfinni er slept.

Ef eitthver hefur reynslu af svona leiðindum eða swappað svona sjálfur væru hvaða uppýsingar sem er vel þegnar.

Re: Gangtruflanir á 323i, eftir m50 manifold swap.

PostPosted: Tue 20. Mar 2012 22:51
by HaffiG
Hljómar eins og vacuum leki. Keyptu startsprey og gluðaðu yfir allar hosur og samskeyti með bílinn í lausagangi og athugaðu hvort gangurinn lagist á meðan þú spreyjar.

Re: Gangtruflanir á 323i, eftir m50 manifold swap.

PostPosted: Thu 22. Mar 2012 00:39
by maxel
HaffiG wrote:Hljómar eins og vacuum leki. Keyptu startsprey og gluðaðu yfir allar hosur og samskeyti með bílinn í lausagangi og athugaðu hvort gangurinn lagist á meðan þú spreyjar.

Í alvöru? Ég hef nú aldrei heyrt um þessa aðferð en þetta hljómar eins og uppskrift af báli :|

Re: Gangtruflanir á 323i, eftir m50 manifold swap.

PostPosted: Thu 22. Mar 2012 11:30
by sosupabbi
maxel wrote:
HaffiG wrote:Hljómar eins og vacuum leki. Keyptu startsprey og gluðaðu yfir allar hosur og samskeyti með bílinn í lausagangi og athugaðu hvort gangurinn lagist á meðan þú spreyjar.

Í alvöru? Ég hef nú aldrei heyrt um þessa aðferð en þetta hljómar eins og uppskrift af báli :|

Ég hef heyrt að menn séu að nota bremsuhreinsi í þetta líka, ætli startspray virki ekki svipað.

Re: Gangtruflanir á 323i, eftir m50 manifold swap.

PostPosted: Thu 22. Mar 2012 11:42
by Misdo
Athugaðu allar hosur ef þetta skildi vera vacuum leki

Re: Gangtruflanir á 323i, eftir m50 manifold swap.

PostPosted: Fri 23. Mar 2012 15:01
by BMW_Owner
sosupabbi wrote:
maxel wrote:
HaffiG wrote:Hljómar eins og vacuum leki. Keyptu startsprey og gluðaðu yfir allar hosur og samskeyti með bílinn í lausagangi og athugaðu hvort gangurinn lagist á meðan þú spreyjar.

Í alvöru? Ég hef nú aldrei heyrt um þessa aðferð en þetta hljómar eins og uppskrift af báli :|

hafðu engar áhyggjur, þú ert aldrei nálægt neinum eldi eða neista þannig það er ekkert til að kveikja í gasinu(sprayinu)sem þú ert að sprauta á vélina, vélin sogar bara úðinn inn í sig og þar af leiðandi breytist gangurinn, þetta er mjög algeng bilunargreining en ef þú treystir þér ekki í þetta þá læturðu bara einhvern fagmann bilanagreina bílinn þinn í eðalbílum :thup:

Re: Gangtruflanir á 323i, eftir m50 manifold swap.

PostPosted: Fri 23. Mar 2012 16:13
by arni87
Ég myndi byrja á að skoða vel allar hosur og vacum lagnir ÁÐUR en ég færi í startsprey.

Ef ekkert kemur í ljós við VANDLEGA skoðun þá myndi ég fara í að nota startsprey, en farðu bara varlega í spreyið.
Og hvað sem þú gerir með það, ALLS EKKI beyna úðanum að loftinntakinu, það getur haft slæmar afleiðingar í för með sér.

Smá aðvörun.
Startsprey er eitur fyrir vélina, ef hún fær of mikið af því þá brennur smurfilman utan á slífinni hjá þér og vélin verður óþétt, fer að brenna smurolíu og verður treg í gang eða neitar jafnveæ að fara í gang eftir á.
Þetta er engin lygi, ég er búinn að meðhöndla vél eftir startsprei og það þurfti að taka heddið í gegn og hóna cylendra, skifta um stimpilhringu og slípa stimpla.
Þetta gerist þegar startsprey, fituhreynsir eða slík brunaaukandi efni eru notuð.

Re: Gangtruflanir á 323i, eftir m50 manifold swap.

PostPosted: Fri 23. Mar 2012 19:22
by HaffiG
maxel wrote:
HaffiG wrote:Hljómar eins og vacuum leki. Keyptu startsprey og gluðaðu yfir allar hosur og samskeyti með bílinn í lausagangi og athugaðu hvort gangurinn lagist á meðan þú spreyjar.

Í alvöru? Ég hef nú aldrei heyrt um þessa aðferð en þetta hljómar eins og uppskrift af báli :|

Það er bara ekki fræðilegur möguleiki. Notaru ekki hvort eð er startsprey í loftinntakið þegar þú þarft að nota það sem slíkt?

arni87 wrote:Smá aðvörun.

Þú ert aldrei að fara að ná svo miklu spreyji inn í vélina í gegnum vacuum leka að það hafi einhver slæm áhrif. Þú þarft allavega að vera MJÖG graður með spreyjið til þess að það fari að hafa slæm áhrif á vélina.

Þetta er allavega aðferð sem margir bifvélavirkjar hafa mælt með og nýttist mér í bæði skiptin sem ég fór í þetta swap.

Re: Gangtruflanir á 323i, eftir m50 manifold swap.

PostPosted: Fri 23. Mar 2012 20:50
by BMW_Owner
arni87 wrote:Ég myndi byrja á að skoða vel allar hosur og vacum lagnir ÁÐUR en ég færi í startsprey.

Ef ekkert kemur í ljós við VANDLEGA skoðun þá myndi ég fara í að nota startsprey, en farðu bara varlega í spreyið.
Og hvað sem þú gerir með það, ALLS EKKI beyna úðanum að loftinntakinu, það getur haft slæmar afleiðingar í för með sér.

Smá aðvörun.
Startsprey er eitur fyrir vélina, ef hún fær of mikið af því þá brennur smurfilman utan á slífinni hjá þér og vélin verður óþétt, fer að brenna smurolíu og verður treg í gang eða neitar jafnveæ að fara í gang eftir á.
Þetta er engin lygi, ég er búinn að meðhöndla vél eftir startsprei og það þurfti að taka heddið í gegn og hóna cylendra, skifta um stimpilhringu og slípa stimpla.
Þetta gerist þegar startsprey, fituhreynsir eða slík brunaaukandi efni eru notuð.

Eg veit ekki i hvada magni du ert ad sprauta dessu inn í vélina en ef detta kemur fyrir eftir ad du notar startsprey dá ertu ad gera eitthvad alvarlega vitlaust eda vélin var ónýt fyrir :roll:

Re: Gangtruflanir á 323i, eftir m50 manifold swap.

PostPosted: Sat 24. Mar 2012 22:33
by maxel
HaffiG wrote:
maxel wrote:
HaffiG wrote:Hljómar eins og vacuum leki. Keyptu startsprey og gluðaðu yfir allar hosur og samskeyti með bílinn í lausagangi og athugaðu hvort gangurinn lagist á meðan þú spreyjar.

Í alvöru? Ég hef nú aldrei heyrt um þessa aðferð en þetta hljómar eins og uppskrift af báli :|

Það er bara ekki fræðilegur möguleiki. Notaru ekki hvort eð er startsprey í loftinntakið þegar þú þarft að nota það sem slíkt?

arni87 wrote:Smá aðvörun.
Startsprey er eitur fyrir vélina, ef hún fær of mikið af því þá brennur smurfilman utan á slífinni hjá þér og vélin verður óþétt, fer að brenna smurolíu og verður treg í gang eða neitar jafnveæ að fara í gang eftir á.
Þetta er engin lygi, ég er búinn að meðhöndla vél eftir startsprei og það þurfti að taka heddið í gegn og hóna cylendra, skifta um stimpilhringu og slípa stimpla.
Þetta gerist þegar startsprey, fituhreynsir eða slík brunaaukandi efni eru notuð.

Þú ert aldrei að fara að ná svo miklu spreyji inn í vélina í gegnum vacuum leka að það hafi einhver slæm áhrif. Þú þarft allavega að vera MJÖG graður með spreyjið til þess að það fari að hafa slæm áhrif á vélina.

Þetta er allavega aðferð sem margir bifvélavirkjar hafa mælt með og nýttist mér í bæði skiptin sem ég fór í þetta swap.

Smá research, meðalhiti á vélarblokk er 85°c og til að kveikja í startsprayi þarf 160°c.
En það væri svosem fræðilegur ef einhverjum myndi detta í hug að sprauta þessu óvart á pústgreinina.

Re: Gangtruflanir á 323i, eftir m50 manifold swap.

PostPosted: Sat 24. Mar 2012 22:53
by gstuning
arni87 wrote:Ég myndi byrja á að skoða vel allar hosur og vacum lagnir ÁÐUR en ég færi í startsprey.

Ef ekkert kemur í ljós við VANDLEGA skoðun þá myndi ég fara í að nota startsprey, en farðu bara varlega í spreyið.
Og hvað sem þú gerir með það, ALLS EKKI beyna úðanum að loftinntakinu, það getur haft slæmar afleiðingar í för með sér.

Smá aðvörun.
Startsprey er eitur fyrir vélina, ef hún fær of mikið af því þá brennur smurfilman utan á slífinni hjá þér og vélin verður óþétt, fer að brenna smurolíu og verður treg í gang eða neitar jafnveæ að fara í gang eftir á.
Þetta er engin lygi, ég er búinn að meðhöndla vél eftir startsprei og það þurfti að taka heddið í gegn og hóna cylendra, skifta um stimpilhringu og slípa stimpla.
Þetta gerist þegar startsprey, fituhreynsir eða slík brunaaukandi efni eru notuð.

Hvað ertu að reykja eða ertu að sniffa startsprey?

Magnið sem þarf til að koma vél í gang með startsprey er svo lítið að eitthvað meira veldur backfire og þá viltu ekki vera nálægt, Ég hef séð AFM fljúga af vélum. Það er engin leið að dæla ofan í startandi vél svo mikið að sleevarnar eyðileggist

Re: Gangtruflanir á 323i, eftir m50 manifold swap.

PostPosted: Sat 24. Mar 2012 23:19
by MR.BOOM
Notið bara WD-40 í þessar æfingar....hefur verið notað í svona stöff í áratugi....

Re: Gangtruflanir á 323i, eftir m50 manifold swap.

PostPosted: Sun 25. Mar 2012 21:43
by zodiac25
Ég prófaði að dreifa smá starspreyi undir manifoldið, gangurinn batnaði mikið þegar ég dreifði þvi yfir t-stykkið sem ég notaði, við nánari athugun kom í ljós að það var brot í t-stykkinu. Ég kipti því næst manifoldinu af og skipti út t-stykkinu, startaði bílnum og gangurinn gjörbreyttist. Ég er ánægður með kraftin og bjóst svo sannarlega ekki við svona mikilli virkni, algjört must svona swap á m52 mótora.

Re: Gangtruflanir á 323i, eftir m50 manifold swap.

PostPosted: Mon 26. Mar 2012 02:49
by ömmudriver
zodiac25 wrote:Ég prófaði að dreifa smá starspreyi undir manifoldið, gangurinn batnaði mikið þegar ég dreifði þvi yfir t-stykkið sem ég notaði, við nánari athugun kom í ljós að það var brot í t-stykkinu. Ég kipti því næst manifoldinu af og skipti út t-stykkinu, startaði bílnum og gangurinn gjörbreyttist. Ég er ánægður með kraftin og bjóst svo sannarlega ekki við svona mikilli virkni, algjört must svona swap á m52 mótora.

Gott að heyra að þetta reddaðist :thup:

Re: Gangtruflanir á 323i, eftir m50 manifold swap.

PostPosted: Mon 26. Mar 2012 03:11
by srr
Og enginn eldur eða vélin ónýt? :lol: