Eins og segir í titlinum þá er bíllinn byrjaður að ganga mjög gróft í hægagangi og drepur á sér ef ég stoppa á ljósum, þ.e.a.s þegar ég sleppi bensíngjöfinni, annars er bíllinn mjög góður í venjulegum akstri og kokar ekkert.
Ég fylgdi öllum leiðbeinigunum á þessum þráð, varðandi swappið: http://www.emotors.ca/Articles/40.aspx
Ég las þráðin aðeins betur og kom þá í ljós að ég hafði fest vitlausan skynjara, IAT (OBD I) skynjaran á M50 manifoldið. En IAT (OBD II) skynjarin átti að fara þar. Ég færði þá (OBD II) skynjaran á réttan stað. Eftir það byrjaði bíllinn að ganga aðeins betur í hægagangi, en hann heldur samt áfram að drepa á sér, ef bensíngjöfinni er slept.
Ef eitthver hefur reynslu af svona leiðindum eða swappað svona sjálfur væru hvaða uppýsingar sem er vel þegnar.



