Bíllinn hjá mér er nýbyrjaður að haga sér frekar illa. Kemur helst í ljós þegar ég er að keyra upp brekkur þá bara varla drífur hann upp, bara algörlega kraftlaus.
Síðan núna áðan varð þetta ennþá verra, fór bara að hikksta og koðnaði alveg niður í keyrslu, kom bara ekkert afl við það að stíga á bensíngjöfina en síðan bara allt í einu kikkaði hann aftur inn. Náði að keyra hann þokkalega heim alveg.
Dettur ykkur eitthvað í hug hvað þetta gæti verið í svona fljótu bragði?




