Page 1 of 1

e39 540 | Lásinn bilaður, næ ekki að opna bílinn.

PostPosted: Mon 12. Mar 2012 13:45
by andr1g
Sælir,

Er með e39 540 2000 árgerð. Lásinn bílstjóramegin er búinn að vera leiðinlegur uppá síðkastið og núna er ekki mögulegt að opna hann með lyklinum, það virkar vel að opna skottið þannig lykillinn er í lagi. Þetta er eldri aukalykill þannig það er ekki hægt að opna hann með fjarstýringu. Er búinn að prófa graphite spray á lásinn og reyndi eftir bestu getu að athuga hvort að það sé eitthvað fast þarna inni. Ég næ ég varla að snúa honum, ég hef náð því 2-3 sinnum en þá snýst hann 180° og ekkert skeður, þannig það er eins og eitthvað sé laust þarna inni.

Þ.a.f kemst ég ekki inn í bílinn þar sem aftursætin eru ekki fellanleg úr skottinu, hvaða möguleika hef ég, er einhver önnur leið til að komast inní bílinn eða þarf ég að láta draga bílinn til B&L / TB?

Kv,

Re: e39 540 | Lásinn bilaður, næ ekki að opna bílinn.

PostPosted: Mon 12. Mar 2012 18:19
by HaffiG
Getur ekki Neyðarþjónustan opnað lásinn fyrir þig eða eitthvað? Þú þarft örugglega að skipta um allt unitið.

Re: e39 540 | Lásinn bilaður, næ ekki að opna bílinn.

PostPosted: Mon 12. Mar 2012 18:39
by Zed III
HaffiG wrote:Getur ekki Neyðarþjónustan opnað lásinn fyrir þig eða eitthvað? Þú þarft örugglega að skipta um allt unitið.


Það þarf ekki endilega að skipta um allt en það þarf amk að ná að opna. Lúba svo allt vel.

Re: e39 540 | Lásinn bilaður, næ ekki að opna bílinn.

PostPosted: Tue 17. Apr 2012 00:54
by Subbi
er hann ekki bara í deadlock hefur hann orðið rafmagnslaus nýlega togar handfangið út til hálfs meðan snúið er til vinstri og finnur að það semigrípur ferð þá alveg til hægri og ætti þá að opna sé hann deadlocked