Page 1 of 1

E36 325 byrjar alltíeinu að vera leiðinlegur

PostPosted: Sat 03. Mar 2012 03:21
by krayzie
er með eina spurningu fyrir ykkur

ég var að keyra áðan og botnaði 3 gírinn á bílnum og stoppaði síðan á ljósum stuttu seinna, þegar ég tek af stað þá er bíllinn byrjaður með leiðindi og gengur ekki á öllum.. það er allt í góðu á vissri gjöf en er mest megnis með stæla og er hikstandi eins og þessi eini cyl sé að detta inn og út.

ég er að velta fyrir mér hvort þetta sé háspennukefli að byrja með leiðindi eða hvort þetta geti verið vatn í loftinntaki? það sullaðist smá vatn á loftsíuna fyrr í kvöld og ég hreinsaði allt sem ég gat úr henni og virtist ekkert svo slæm áður en ég fór út að keyra og pældi ekkert í því, það var allt í góðu með bílinn þangað til eftir að ég botnaði hann í þennan smá tíma, pælingin er hvort það hafi náð að fara smá vatn í gegn?

spurningin er sumsé,, hvernig hagar M50B25 sér þegar háspennukefli er að byrja að klikka?
og ef einhver hefur lent í því að fá smá vatn í loftinntakið, hvort það lýsi sér eitthvað svipað og þetta?

ætla að skoða þetta betur á morgun, væri fínt að fá hugmyndir áður :)

Re: E36 325 byrjar alltíeinu að vera leiðinlegur

PostPosted: Sat 03. Mar 2012 19:26
by krayzie
skoðaði þetta áðan og þetta virðist vera bara á þessum eina cyl, prófaði öll háspennukeflin og víxlaði á þennan sem var ekki að kveikja og það breyttist ekkert, ég er farinn að halda að þetta sé stíflaður spíss, getur það ekki verið?

Re: E36 325 byrjar alltíeinu að vera leiðinlegur

PostPosted: Sun 04. Mar 2012 17:31
by HaffiG
Lenti í þessu, casið hjá mér var heddpakkning, sem var byrjun á veeeeeeeeeeseni..

Re: E36 325 byrjar alltíeinu að vera leiðinlegur

PostPosted: Mon 05. Mar 2012 11:47
by agustingig
HaffiG wrote:Lenti í þessu, casið hjá mér var heddpakkning, sem var byrjun á veeeeeeeeeeseni..


:( Ógeðslega leiðinlegt en það bendir alltof margt til þess.

Re: E36 325 byrjar alltíeinu að vera leiðinlegur

PostPosted: Tue 06. Mar 2012 09:33
by Saxi
Prófaðu að gamni að taka af honum rafmagnið í svona hálftíma og athuga hvort það breytir einhverju.