Page 1 of 1

Bilanakódar í e39 540. HJÁLP

PostPosted: Fri 02. Mar 2012 22:38
by Jói Vidd
Sælir meistarar!
Ég er með bmw 540 '99 E39 V8 sem er með smá úrval af bilanakódum..
Veit einhver hvað getur orsakað þetta? eða hvað þetta þíðir, hvað er bilað?

P1341: Multiple cylinder Misfire with Fuel Cut-Off
P1349: Misfire cylinder 4 with Fuel cut-off
P0155: O2 Sensor Heater Circuit Malfunction (Bank 2 Sensor 1)
P0135: Oxygen O2 Sensor Heater Circuit Malfunction (Bank 1, Sensor 1)
P0348: Camshaft Position Sensor A Circuit High Input (Bank 2)

Það semsagt koma gangtruflanir í hann öðruhvoru einsog hann gengur ekki á öllum. Veit einhver, er þetta kerti eða háspennukefli eða er hann að fá of mikið eða lítið bensín? spíssar?
Veit einhver eitthvað?

Re: Bilanakódar í e39 540. HJÁLP

PostPosted: Sat 03. Mar 2012 01:02
by x5power
ef bíllinn er ekki að ganga á öllum þá færðu alla þessa kóta inn!

Re: Bilanakódar í e39 540. HJÁLP

PostPosted: Sat 03. Mar 2012 01:03
by x5power
það þarf betri bilanagreiningu!

Re: Bilanakódar í e39 540. HJÁLP

PostPosted: Sat 03. Mar 2012 05:43
by Danni
Var með svipaðan lista af villukóðum á E39 540i '99 þegar súrefnisskynjari í pústinu gafst upp. Þeir eru fjórir í pústinu, tveir fyrir framan og tveir fyrir aftan hvarfakútana fyrir sitthvorn Bank. Þú færð villuboð á tvo skynjara reyndar. Myndi tengja hann aftur í tölvu og lesa af skynjurunum og sjá hvað þeir gefa út. Ef þeir eru rokkandi upp og niður um einhver gildi (sem eru tekin fram í forritinu sem bilanagreinir) þá eru þeir í lagi en ef þeir sýna bara stöðuga sömu töluna þá eru þeir dauðir.