skipta um startara í M70
sælir, ég lendi í því svona í einu af 8-10 skiptum að startarinn nær ekki taki á kransinum, hvort sem þetta þýðir að startarinn er ekki að skjóta sér nægilega langt fram eða kransinn er orðinn þetta eyddur ætlaði ég samt sem áður að ath, hvort ég næði ekki startaranum úr og láta kíkja á hann en þetta virðist vera ógerningur... ég reif soggreinarnar af og allt, fann fyrir boltunum sem halda honum en þótt ég hefði verið með dvergahendur myndi ég ekki koma neinu fyrir.. þannig ég spyr þarf ég að rífa framendan af til að gera þetta eða er það bara vélin úr?
