Page 1 of 1

Headpakkning

PostPosted: Wed 25. Jan 2012 09:36
by Wigelund
Sælir, ætlaði að afla mér smá upplýsinga

Ég er eigandi e46 99' BMW 318, setti hann í viðgerð útaf leiðilegum gangi, þeir gerðu við það að þeirra sögn en eg fekk bilinn úr viðgerð og sama kvöld kom vatskassaljósið á og gangurinn varð aftur leiðinlegur. Ég setti bílinn inn og var að fara norður, hringdi í þá og sagði þeim að gangurinn væri ennþá lélegur og þeir sögðu mér að koma með hann aftur.
Svo kom ég suður aftur og ætlaði að fara á bílnum en þá fór hann ekki i gang.. þannig ég lét hann sitja i 2 daga og þá fór hann i gang en aftur leiðinlegur gangur.

Á leiðinni á æfingu i gærkvöldi byrjaði hvítur reykur að dælast út og hitamælirinn fór upp úr öllu valdi, stoppaði á bensínstöð og þá var vatnskassinn tómur, bætti á vatnið og keyrði hann á verkstæðið og fékk að geyma hann inni hjá þeim yfir nóttina.

Nú var ég að fá símtal um að Headpakkningin væri farin 100k og það væri einhver olíuleki í vélinni að framan auka 100K

Var bara að spá hvað er það sem eru mögulegir valdar á að svona gerist?

Sá spyr sem ekki veit

mbk,

Re: Headpakkning

PostPosted: Wed 25. Jan 2012 20:27
by gardara
Lítið vatn á vantskassa? Gat á vatnskassa eða tappinn á vatnskassanum illa hertur?

Heddpakkningin fer svo þegar bíllinn ofhitnar