Page 1 of 1

Miðstöðvarvesen

PostPosted: Fri 13. Jan 2012 10:44
by unnarh
Ég er með 1994 árgerð af 316i e36, og um daginn fór miðstöðin annað slagið að detta út. Smám saman fór hún að detta meira og meira út og núna er hún alveg farin. Eitthverjar hugmyndir um hvað gæti verið að og hvernig hægt er að gera við þetta ?

Re: Miðstöðvarvesen

PostPosted: Fri 13. Jan 2012 10:47
by Zed III
Dettur hún út á öllum hröðum, þ.e. virkar hún á einhverri stillingu ?

ef ekki skoðaðu þá relayin hjá þér. Ef þau eru í lagi gæti þetta verið mótorinn.

Ef hún virkar á mesta blástri þá er þetta líklega viðnámið.

.. og já, það er best að gera við þetta með því að skipta út þeim hlut sem er bilaður fyrir einhvern sem er ekki bilaður :wink:

Re: Miðstöðvarvesen

PostPosted: Fri 13. Jan 2012 10:52
by unnarh
Hún virkar ekki í neinni stillingu, ég er að fara í það að skoða relayin.

Re: Miðstöðvarvesen

PostPosted: Fri 13. Jan 2012 11:00
by Zed III
unnarh wrote:Hún virkar ekki í neinni stillingu, ég er að fara í það að skoða relayin.


Ég lenti í þessu sama og þá var það brunnið ljósgrænt relay sem olli þessu.

Re: Miðstöðvarvesen

PostPosted: Fri 13. Jan 2012 12:32
by unnarh
Relayið er brunnið, ég fór og skipti um það en það breyttist ekki neitt.

Re: Miðstöðvarvesen

PostPosted: Fri 13. Jan 2012 19:10
by Zed III
Testa motorinn næst.