Page 1 of 1

M50B25 Kokar og drepur á sér

PostPosted: Tue 10. Jan 2012 14:39
by agustingig
Þannig er málið að á leiðini í vinnuna í morgun fór bíllinn að haga sér skringilega,, Hann varð alltíeinu allveg kraftlaus einsog það hefði verið svissað af honum, en það var svissað á og allt í standi með það, rúlla inní n1 ártúns og slæ hann í nuetral og hann svona höktir 500-1000rpm hægagang, en ómögulegt að rev-a hann eða láta hann fara upp á snúning,, síðan drepst á honum. Ég set aftur í gang og þá er allt 100%,, í nokkrar min. Þá byrjaði hann aftur á því sama,, þegar ég drep á honum og kveiki aftur þá er hann allveg góður, ég prófaði eitt skiptið að stappa hann og láta hann skipta niður, þá var hann allveg góður og vann fínt bara á efri snúning. Þetta er allt á meðan bíllinn er löngu orðinn heitur.. fór núna út og var eitthvað að reyna skoða þetta en ég fæ hann ekki til þess að byrja koka,, gengur 100% og rev-ar ekkert mál uppá snúning.. WTF?? Vill ekki vera lenda í þessu á leiðini heim á eftir?!?! :S :S

Re: M50B25 Kokar og drepur á sér

PostPosted: Tue 10. Jan 2012 14:41
by Jón Ragnar
Lendi stundum í þessu á mínum

Kemur eins og það sé fyrirstaða eða eitthvað?

Re: M50B25 Kokar og drepur á sér

PostPosted: Tue 10. Jan 2012 14:43
by agustingig
John Rogers wrote:Lendi stundum í þessu á mínum

Kemur eins og það sé fyrirstaða eða eitthvað?


Hann verður bara ógeðslega tregur, Vill ekkert gera fyrir mig. Ef ég drep á honum og kveiki aftur, Þá er hann allveg eðlilegur, En bara í pínu stund... :|

Re: M50B25 Kokar og drepur á sér

PostPosted: Tue 10. Jan 2012 14:55
by Zed III
vacuuuuuum leki er það ekki.

Re: M50B25 Kokar og drepur á sér

PostPosted: Tue 10. Jan 2012 15:14
by BirkirB
Það skeði svipað hjá mér á m52b25 eftir að ég keyrði á slabbi eða í poll í gær....gekk ekki á öllum cyl og missti afl og vesen. Drap á honum og kveikti aftur og hann gekk eðlilegur eftir það. Í morgun var allt eðlilegt enda ekki rennandi blautt úti...

Re: M50B25 Kokar og drepur á sér

PostPosted: Tue 10. Jan 2012 17:49
by IceDev
Sveifarásskynjari eða háspennukefli.

Lenti í sveifarásnum með E39 523i, gekk truntulega og drap á sér willy nilly.

Svipað með Z4 og háspennukefli þar, þá var hann bara að "drepa" á sér þegar að honum þóknaðist.

Býst frekar við skynjaranum heldur en háspennukeflinu.

Axel gæti meira að segja átt hann til fyrir þig viewtopic.php?f=14&t=51967