Sælir spjallmenn.
Ég er í smá vandræðum með samlæsingarnar hjá mér, er með ci model af e46 þetta lýsir sér þannig að stundum opnast hann með fjarstyringunni en stundum ekki, ef hann opnast ekki þá get ég bara opnað með því að setja lykilinn í cylenderinn en þá opnast ekki farþegahurðinn né skott og bensínlok og get ekki heldur opnað hana með því að ýta á takkann inn í bíl, frekar leiðinlegt að láta farþeganna alltaf klifra yfir miðjustokkinn :S. Ég heyri alltaf ef læsingin stendur á sér í hurðinni bílstjóramegin eins og það sé þvingun eða eitthvað álíka svo ég tók læsinguna úr þar og skoðaði og sá ekkert að.
Einhverjar hugmyndir hvað gæti verið að hrjá hann?

