Ofhitunarvandamál #56 [e34]
Jæja þannig er mál með vexti að ég fór með bílinn minn (bmw e34 525ia) í viðgerð 2009 þar sem var skipt um vatnskassa því hinn var ónýtur. Eftir það hef ég náð að keyra 5000-6000 km þangað til að hann mýgur af sér vatninu aftur og þá var skipt um einhverjar hosur og var það til friðs þar til í október áður en hann fór af númerum (og já það er kælivökvi á honum núna svo þið álítið mig ekki algjöran fávita). Þegar að hann hinsvegar pissar því af sér, þá lekur vatnið út um eitthvað lítið gat á plasthlíf undir vatnskassanum, og meðfram forðabúrinu einnig.
Ég get nokkurnveginn útilokað það að þetta sé heddpakkning því:
* ég hef aldrei verið að keyra hann þar til hann fer í rauða.
* Enginn hvítur/bláleytur reykur úr pústinu.
* Hann pissar alltaf af sér vatninu, semsagt það fer ekki inn á vélina og býr til jógúrt.
* Hann gengur á öllum.
Og já það er grænn kælivökvi á honum? Gæti það kannski haft eitthvað að segja þar sem að ég hef heyrt að sumar tegundir séu veikar fyrir því ef það er ekki rétti vökvinn samkvæmt framleiðanda?
Eða er ég bara algjör auli og það þarf einungis að skipta um vatnsdælu eða viftukúplingu?
Og já, megið hlæja að mér og hvaðeina svo fremi sem þið hafið getið gefið góð ráð