Page 1 of 1

Smá hræðsla

PostPosted: Thu 29. Dec 2011 01:26
by zkinkan
Hæ,

Ég á BMW E36 316 92" og ég var a leið heim áðan i þessum þunga snjó, festi mig hér og þar en svo þegar ég var kominn í innkeyrsluna heima þá drap ég á bilnum labbaði inn, en þegar ég var að labba inn heyrði ég svona "ssssssss" og svo kom reykur uppúr húddinu á bílnum. Bíllinn fer i gang og allt það en ég þori ekki að keyra hann neitt og prufa. Getur eitthvað hafa farið í bilnum sem ég gæti átt að láta tékka á ?

kv

Re: Smá hræðsla

PostPosted: Thu 29. Dec 2011 01:44
by Jón Ragnar
Eflaust bara snjóflóð á pústið þitt eða eitthvað :)

Re: Smá hræðsla

PostPosted: Thu 29. Dec 2011 07:37
by Bandit79
John Rogers wrote:Eflaust bara snjóflóð á pústið þitt eða eitthvað :)


x2 :lol:

Re: Smá hræðsla

PostPosted: Thu 29. Dec 2011 12:47
by Einarsss
John Rogers wrote:Eflaust bara snjóflóð á pústið þitt eða eitthvað :)



Líklegast þetta, ef hitinn á bílnum er í lagi þegar þú lætur hann hitna og það vantar ekki kælivökva þá ertu góður.

Re: Smá hræðsla

PostPosted: Sat 31. Dec 2011 00:14
by AronT1
ATH að kærastan mín á hinn aðganginn, fékk að koma þessu inn á hennar aðgangi.

EN að málunum... þá fór hann í gang og allt það, ég fór með hann á bensínstöðina shell hjá smáralind, en þegar ég var á ljósunum þar drap hann bara á sér, hann var ekki rafmagnslaus eða neitt, nóg bensín, en bíllinn var orðinn VEL heitur. Svo setti ég vatn á kassann bara til öryggis og frostlögur, og hann fór í gang og ég keyrði heim og hann var VEL heitur þá aftur, ég kíkti undir bílinn á vatnskassan þar og þá ók ég eftir því að það dropar undan honum, stundum allveg bunar vatnið út. Hér er mynd af þessu sem það lak úr, er ekki 1000% viss úr hverju en það var annaðhvort þessara. Er einhver tappi farinn sem á að vera þarna eða ?

Image

Re: Smá hræðsla

PostPosted: Sat 31. Dec 2011 00:22
by saemi
Passaðu þig á því að keyra bílinn aldrei þannig að hitamælirinn fari vel yfir 3/4 í hita. Hann má alls ekki fara upp í rautt, þá eru miklar líkur á að þú eyðileggir heddpakkninguna og jafnvel heddið.

Af myndinni að dæmi ef þetta er undir bílnum, þá ætti ekki að leka út um hvorugt þessara sem hringurinn er um. Þetta bláa er aftöppunin af kassanum, ég er ekki klár á hvað hitt er. Líklegast að vatnskassinn sé sprunginn eða hosa sem fer í hann.

Re: Smá hræðsla

PostPosted: Sat 31. Dec 2011 11:44
by gardara
Er þetta ekki skynjarinn þarna á vatnskassanum sem lekur?

Re: Smá hræðsla

PostPosted: Sat 31. Dec 2011 19:42
by Angelic0-
Kælikerfisproblem... bara hættulegt :!:

Re: Smá hræðsla

PostPosted: Sun 01. Jan 2012 01:23
by crashed
ég myndi nú bara byrja á því að herða á bláa tappanum, því vinstri hringurinn að þar lekur úr honum ef blái er laus, ef það dugar ekki að þá getur o hryngurinn á tappanum verið ónítur

Re: Smá hræðsla

PostPosted: Sun 01. Jan 2012 16:48
by Subbi
Sammála Síðasta Ræðumanni Giska á O hringinn :)

Re: Smá hræðsla

PostPosted: Sun 01. Jan 2012 17:14
by Aron Andrew
Mér finnst nú líklegra að það hafi eitthvað brotnað við að festast í snjóskafli frekar en að einhver o-hringur hafi gefið sig.

Fáðu einhvern sem þekkir þetta til að kíkja á bílinn hjá þér áður en það sýður á honum hjá þér :wink:

Re: Smá hræðsla

PostPosted: Sun 01. Jan 2012 17:51
by Angelic0-
Aron Andrew wrote:Mér finnst nú líklegra að það hafi eitthvað brotnað við að festast í snjóskafli frekar en að einhver o-hringur hafi gefið sig.

Fáðu einhvern sem þekkir þetta til að kíkja á bílinn hjá þér áður en það sýður á honum hjá þér :wink:


My thoughts exactly....