Page 1 of 1

Biluð kúpling :S

PostPosted: Sat 10. Dec 2011 02:21
by AronT1
Sælir,


í gærkvöldi lagði égbílnum mínum í bílastæðið eftir að hafa verið að rúnta á E36-inum mínum(e36 316 92árgerð) og svo þegar ég vakna morgunin eftir og ætla að kveikja á bílnum og stíg á kúplinguna fer hún alla leið niður eins og hún bara gefi sig og detti niður og ég get auðvitað ekki sett í gír. Kúplingin kemur strax upp aftur en ekkert gerist.
Einhver með hugmyndir hvað gæti verið að og veit einhver hvar ég gæti látið kíkja á þetta eða hver gæti kíkt á þetta fyrir mig gegn vægu gjaldi ? :)


kv, Aron

Re: Biluð kúpling :S

PostPosted: Sat 10. Dec 2011 04:16
by eiddz
AronT1 wrote:Sælir,


í gærkvöldi lagði égbílnum mínum í bílastæðið eftir að hafa verið að rúnta á E36-inum mínum(e36 316 92árgerð) og svo þegar ég vakna morgunin eftir og ætla að kveikja á bílnum og stíg á kúplinguna fer hún alla leið niður eins og hún bara gefi sig og detti niður og ég get auðvitað ekki sett í gír. Kúplingin kemur strax upp aftur en ekkert gerist.
Einhver með hugmyndir hvað gæti verið að og veit einhver hvar ég gæti látið kíkja á þetta eða hver gæti kíkt á þetta fyrir mig gegn vægu gjaldi ? :)


kv, Aron


Kúplingsþræll, kúplingsmaster eða gat á lögnum

Kannaðu hvort það sé að leka einhversstaðar undir bílnum frá gírstöng að forðabúri fyrir bremsuvökva eða hvort það sé að leka inní bíl hjá kúplingspedala.

Re: Biluð kúpling :S

PostPosted: Sat 10. Dec 2011 13:47
by ingo_GT
Kúplingsþrællinn giska ég á,

Veit um nokkur atvik þar sem hann fer þegar það er snjór og frost:P

Re: Biluð kúpling :S

PostPosted: Sat 10. Dec 2011 15:15
by IngóJP
Já ég lennti í því á vw sem ég átti eftir að ég var búinn að vera taka snow drift kvöldið áður dugði samt fyrir mig að setja löppina undir kúplingspetalann og ýta upp.

Re: Biluð kúpling :S

PostPosted: Sun 11. Dec 2011 01:40
by AronT1
Væri séns að einhver hér væri svo góðhjartaður og kæti kíkt á á þetta fyrir mig a mánudaginn ?

Endielga sendið mér PM, get borgað eitthvað smá, er mjööög mikill klaufi þegar kemur að svona löguðu :)


EDIT: Eða einhverjum aðila sem gæti kíkt á þetta hjá mér, því ég get ekki keyrt gæjann :thdown:

Re: Biluð kúpling :S

PostPosted: Tue 13. Dec 2011 15:46
by GunniT
vantar bremsuvökva á forðabúrið???

Re: Biluð kúpling :S

PostPosted: Tue 13. Dec 2011 20:17
by AronT1
Neibb það vantar ekki, pedalinn kemur sjálfkrafa upp, þegar ég stíg á hann fer hann alla leið í gólfið og aftur upp aftur lauslega hann er ekki fastur í gólfinu.