Page 1 of 1

Kælivatnsvandamál BMW 540 E39

PostPosted: Tue 06. Dec 2011 20:03
by Andrynn
var að bæta kælivatni á bílinn hjá mér ég fór út og hellti á hann þangað til að prikið í forðabúrinu
var slétt við efri brún á tappanum eins og á að vera þegar bíllinn er kaldur, setti svo í gang og
bíllinn gekk í max 2 mín útá plani. Þá tók ég eftir því að hitamælirinn inni í bíl var kominn í botn!

svo fór ég einhvað að skoða þetta betur og þegar ég svissa á bíllinn þá byrjar nálin á því að fara
upp og sýnir hitastigið á kælivatninu, svo þegar hún er búin að vera stopp í svona 2 sek, þá ríkur hún í botn.

ég er búinn að láta bílinn ganga svoltið og opna loftskrúfuna á vatnskassanum annað slagið og
þar spítist upp vatn og sá loft með annað slagið, er einhver önnur loftskrúfa í þessu?

og hafiði einhverja hugmynd afhverju mælirinn lætur svona?

Re: Kælivatnsvandamál BMW 540 E39

PostPosted: Tue 06. Dec 2011 21:34
by crashed
lenti í þessu á E38 og þá var tengið á hitaskynjaranum lélegt, og einig þegar skynjarinn er að klikka að þá fer hann í botn

Re: Kælivatnsvandamál BMW 540 E39

PostPosted: Tue 06. Dec 2011 22:07
by Andrynn
crashed wrote:lenti í þessu á E38 og þá var tengið á hitaskynjaranum lélegt, og einig þegar skynjarinn er að klikka að þá fer hann í botn


já okey, getur einhver sagt mér hvar þessi skynjari er ca staðsettur í öllu þessu vélarrými :D
er han í öðruhvoru heddinu?

Re: Kælivatnsvandamál BMW 540 E39

PostPosted: Tue 06. Dec 2011 22:39
by crashed

Re: Kælivatnsvandamál BMW 540 E39

PostPosted: Tue 06. Dec 2011 22:48
by Andrynn



http://www.realoem.com/bmw/showparts.do ... g=05&hl=24

ooooooooooog númer 6

sýnist á öllu að þða hafi komist vatn í pluggið á skynjaranum í kassanum......
vonandi lagast þetta í nótt þar sem ég kom bílnum inn í skúr úr yfir 20 stiga frostinu sem er búið að vera hérna :D

Re: Kælivatnsvandamál BMW 540 E39

PostPosted: Wed 07. Dec 2011 20:21
by Lindemann
var ekki bara frosið á kerfinu hjá þér?

Re: Kælivatnsvandamál BMW 540 E39

PostPosted: Wed 07. Dec 2011 20:23
by Andrynn
nibbs, það var ekki frosið
googlaði svoltið og þá er þetta útaf sambandsleysi við annan skynjarann, tók þessi plugg úr
sambandi og spreyjaði einhverju viðalega fínu spreyji inní pluggin og lét þetta standa opið
yfir nótt, og allt í fína standi í morgun þegar ég skoðaði þetta! :D