Page 1 of 2

fæ ekki rafmagn að bensíndælu öryggi í E34 ?

PostPosted: Sat 26. Nov 2011 14:05
by ellipjakkur
er með 89 módel af 535 m30b35 sem ég var að skipta um heddpakkningu í... eftir það hef ég ekki fengið bensín á bílinn
# 1 bensíndæla er í lagi
# 2 fæ straum á relay en ekki á öryggi fyrir bensíndælu
# 3 fæ straum að bensíndælu en hún fer ekki í gang samt

eitthver hér sem hefur lent í svipuðu veseni og gæti hjálpað mér ?

Re: fæ ekki rafmagn að bensíndælu öryggi í E34 ?

PostPosted: Sat 26. Nov 2011 14:09
by Einarsss
ef þú færð straum að dælunni og hún fer ekki í gang... þá hlýtur hún að vera biluð

Re: fæ ekki rafmagn að bensíndælu öryggi í E34 ?

PostPosted: Sat 26. Nov 2011 14:40
by ellipjakkur
já ætla að prófa aðra dælu og sjá hvað gerist

Re: fæ ekki rafmagn að bensíndælu öryggi í E34 ?

PostPosted: Sat 26. Nov 2011 15:44
by ellipjakkur
búinn að prófa nýja bensíndælu og ekkert gerist :/.... allar ábendingar vel þegnar

Re: fæ ekki rafmagn að bensíndælu öryggi í E34 ?

PostPosted: Sat 26. Nov 2011 15:51
by Axel Jóhann
Það verður eitthvað rafmagnsfokk stundum í kringum þetta í e34, ég hef lent í þessu, í einu tilfelli hjá mér, dugaði að opna relayið og láta það smella saman manually, þangað til hann fór í gang og eftir það var þetta í lagi

Re: fæ ekki rafmagn að bensíndælu öryggi í E34 ?

PostPosted: Sat 26. Nov 2011 16:08
by Alpina
Axel Jóhann wrote:Það verður eitthvað rafmagnsfokk stundum í kringum þetta í e34, ég hef lent í þessu, í einu tilfelli hjá mér, dugaði að opna relayið og láta það smella saman manually, þangað til hann fór í gang og eftir það var þetta í lagi

BINGO,,,,,,,,,,, stefnuljósin virkuðu ekki hjá mér ,, en hazardinn virkaði

og umræddur ÞórirG kíkti á teikningar og sagði að tvennt væri í stöðunni,, sambandsleysi ,, eða ónýtt relay

sem reyndist svo vera sambandsleysi,, þeas tók relayið upp úr ,, og setti í smband ,, == júhúúú,, allt virkaði

Re: fæ ekki rafmagn að bensíndælu öryggi í E34 ?

PostPosted: Sat 26. Nov 2011 16:16
by alpina.b10
Ég lenti í svipuðu dæmi, kom straumur enn dælan fór ekki gang og eftir mikla vinnu og rafmagnspælingar þá gafst ég upp og fór með bílinn uppí B&L. þá kom í ljós þegar honum var stungið í tölvu að það væri farinn skynjari ( að mig minnir sveifarásskynjari), skipti um hann og volllaaa bíllinn rauk í gang.

Enn þetta er soldið langt síðan að ég mann ekki alveg hvaða skynjari þetta var.
myndi bara láta þá í Eðalbílum les-ann

Re: fæ ekki rafmagn að bensíndælu öryggi í E34 ?

PostPosted: Sat 26. Nov 2011 17:20
by sh4rk
Það er sveifarásskynjari því að ef hann er ónýtur þá fær tölvan ekki signal um að vélin sé að snúast og þá fer dælan ekki í gang, lenti í þessu á 740 bílnum hjá mér

Re: fæ ekki rafmagn að bensíndælu öryggi í E34 ?

PostPosted: Sat 26. Nov 2011 18:25
by ellipjakkur
ég er reyndar búinn að prófa að taka relayið úr sambandi og prófaði einnig að setja nýtt relay og prófaði að beintengja tenglana í relayinu en ekkert virkaði

ég prófa nýjan sveifarásskynjara á eftir og læt vita hvað kemur útúr þessu ;)

takk ;)

Re: fæ ekki rafmagn að bensíndælu öryggi í E34 ?

PostPosted: Sat 26. Nov 2011 19:31
by Danni
sh4rk wrote:Það er sveifarásskynjari því að ef hann er ónýtur þá fær tölvan ekki signal um að vélin sé að snúast og þá fer dælan ekki í gang, lenti í þessu á 740 bílnum hjá mér

Lentum í þessu í E30 með M20B25. Ekkert signal í bensíndæluna og síðan þegar bensíndælan var beintengd við 12 volt fór hún í gang en samt ekki bíllinn. Klóruðum okkur mikið í hausnum og komumst síðan að þeirra niðurstöðu að það hlaut að vera sveifarásskynjari! En höfum ekki komist svo langt að prófa hann strax :P

Re: fæ ekki rafmagn að bensíndælu öryggi í E34 ?

PostPosted: Sat 26. Nov 2011 21:19
by Einarsss
Danni wrote:

eða víxlaðar bensínslöngur :D ef það hefur verið að gera eitthvað með þær

Re: fæ ekki rafmagn að bensíndælu öryggi í E34 ?

PostPosted: Sun 27. Nov 2011 00:57
by gstuning
Færðu neista?

Hefurru prufað að setja sjálfur rafmagn á dæluna til að heyra í henni í gangi og prufa að starta svo?

Ég sé ekki heldur hvernig öryggið fyrir dæluna fær ekki straum enn dælan fær straum. Egg / Hæna?

Re: fæ ekki rafmagn að bensíndælu öryggi í E34 ?

PostPosted: Sun 27. Nov 2011 01:21
by Danni
Einarsss wrote:
Danni wrote:
sh4rk wrote:Það er sveifarásskynjari því að ef hann er ónýtur þá fær tölvan ekki signal um að vélin sé að snúast og þá fer dælan ekki í gang, lenti í þessu á 740 bílnum hjá mér

Lentum í þessu í E30 með M20B25. Ekkert signal í bensíndæluna og síðan þegar bensíndælan var beintengd við 12 volt fór hún í gang en samt ekki bíllinn. Klóruðum okkur mikið í hausnum og komumst síðan að þeirra niðurstöðu að það hlaut að vera sveifarásskynjari! En höfum ekki komist svo langt að prófa hann strax :P

eða víxlaðar bensínslöngur :D ef það hefur verið að gera eitthvað með þær

Nope OEM mótor, aldrei tekinn uppúr. Bara hætti að fara í gang einn daginn :)

Re: fæ ekki rafmagn að bensíndælu öryggi í E34 ?

PostPosted: Sun 27. Nov 2011 02:42
by srr
Mætti ég forvitnast hvaða e34 535i þú ert með ?

Re: fæ ekki rafmagn að bensíndælu öryggi í E34 ?

PostPosted: Sun 27. Nov 2011 07:15
by ellipjakkur
gstuning wrote:Færðu neista?

Hefurru prufað að setja sjálfur rafmagn á dæluna til að heyra í henni í gangi og prufa að starta svo?

Ég sé ekki heldur hvernig öryggið fyrir dæluna fær ekki straum enn dælan fær straum. Egg / Hæna?

já ég tók dæluna úr bílnum og tengdi beinan straum á hana og hún virkaði flott, ég tók aðra bensíndælu sem mér fannst á hljóði virka betur betur og setti í bílinn og bíllinn engu skárri út frá því

nei ég sé ekki heldur hví ég fæ ekki öryggi fyrir dæluna en dælan fær straum þess vegna spyr ég hér og fatta ekki alveg egg / hæna ? commentið