Page 1 of 1

Upphalaramótorar ónýtir eftir hurðasviss?

PostPosted: Fri 25. Nov 2011 12:45
by Skuli
Datt í hug að senda á ykkur fyrirspurn um þetta

Þannig er mál með vexti að félagi minn lét svissa fyrir sig framhurðum af e60 og e61 bíl. Eftir að hafa svissað virkuðu ekki rúðuupphalararnir hjá honum, þó að hann svissaði aftur og setti orginal hurðirnar á hjá sér þá virkuðu þær ekki heldur (voru ótengdar meðan hinar voru á bílnum), farið var með báða bílana í eðalbíla og þeir dæmdu upphalarana ónýta í öllum hurðunum.

Mér finnst það mjög spes að rúðuupphalararnir sem eru teknar úr bíl A, hurðirnar af bíl B settar á, hinar bara geymdar, hurðar B tengdar og virka ekki, hurðar A settar aftur á og upphalarnir ónýtir á þeim...... ég hefði mikið frekar haldið að þetta væri eitthvað tölvubras því nú eru samlæsingarnar dottnar út hjá honum líka...

Endilega ausið úr viskubrunnum ykkar :D

Með kveðju
Skúli

Re: Upphalaramótorar ónýtir eftir hurðasviss?

PostPosted: Sun 27. Nov 2011 15:12
by Skuli
Hefur einhver hérna heyrt um svona áður???

Re: Upphalaramótorar ónýtir eftir hurðasviss?

PostPosted: Wed 30. Nov 2011 20:29
by Danni
Þegar ég skipti um topplúgumótor í E39 sprakk öryggið í hvert skipti sem ég tók úr sambandi og setti aftur í samband.

Finnst samt hæpið að Eðalbílar hafi klikkað á að athuga öryggið.....

.....eeen það er samt það eina sem mér dettur í hug að gæti verið að þegar allar rúðurnar detta út í einu. Finnst alveg verulega hæpið að allir mótorarnir hafi eyðilagst við þetta.

Re: Upphalaramótorar ónýtir eftir hurðasviss?

PostPosted: Tue 20. Dec 2011 23:53
by Skuli
Þeir sögðust hafa prófa að plögga í tengið milli hurðar og body og þetta virki vel þar, spurning hvort það sé eitthvað á leiðinni frá tenginu á hurðinni sjálfri og í mótorana sjálfa.... gæti það verið? Hurðarnar sjálfar hafa ekki verið teknar neitt í sundur

Re: Upphalaramótorar ónýtir eftir hurðasviss?

PostPosted: Wed 21. Dec 2011 22:03
by slapi
Ef þetta er sami bíll og ég held þá stenst þessi greining