Page 1 of 1

Frosin rúða - hvar fær maður siliconáburð?

PostPosted: Thu 24. Nov 2011 14:06
by thisman
Hvar fær maður eitthvað sniðugt dót til að bera á gúmmílistana í kringum glerið til að koma í veg fyrir að rúðan frjósi föst? Er þá að pæla í einhverju silicondæmi en hef líka séð á google að þeir eru að nota eitthvað sem heitir "Gummi-Pflege" frá BMW. Er að reyna að spara tíma með að tékka hér frekar en að fara að rúlla á allar bensínstöðvarnar með misgóðum árangri - svona ef einhver hefur keypt svona nýlega.

Á mínum virkar þetta þannig að þegar ég tek í handfangið þá fer rúðan niður um örfáa millimetra til að geta opnast (enginn rammi utan um glerið). Ég get því ekki bara sleppt því að rúlla niður rúðunni í frosti. :-)

Re: Frosin rúða - hvar fær maður siliconáburð?

PostPosted: Thu 24. Nov 2011 14:14
by thisman
Já og ég var búinn að bjalla upp í IH/B&L og þeir voru alveg lausir við að eiga þetta sull sem BMW framleiðir.

Re: Frosin rúða - hvar fær maður siliconáburð?

PostPosted: Thu 24. Nov 2011 14:29
by ValliFudd
thisman wrote:Já og ég var búinn að bjalla upp í IH/B&L og þeir voru alveg lausir við að eiga þetta sull sem BMW framleiðir.

Skiljanlega, ætli þú sért ekki sá fyrsti í sögu B&L sem hringir þangað í leit að svona efni? :lol:

Re: Frosin rúða - hvar fær maður siliconáburð?

PostPosted: Thu 24. Nov 2011 14:42
by thisman
ValliFudd wrote:

Hehe, mér hefði reyndar ekki dottið í hug að reyna það nema af því að ég fann gamlan þráð hér þar sem einhver hafði fengið þetta hjá þeim fyrir klink. :-)

by gardara
Hann Bæzi hefur verið að flytja inn svona Gummi-Pflege, getur fengið þetta hjá honum uppi í Höfðabílum

Image

Svínvirkar alveg hreint :thup:

Re: Frosin rúða - hvar fær maður siliconáburð?

PostPosted: Thu 24. Nov 2011 14:49
by thisman
Snilld! Takk fyrir það.

Re: Frosin rúða - hvar fær maður siliconáburð?

PostPosted: Thu 24. Nov 2011 17:48
by Jss
thisman wrote:
ValliFudd wrote:
thisman wrote:Já og ég var búinn að bjalla upp í IH/B&L og þeir voru alveg lausir við að eiga þetta sull sem BMW framleiðir.

Skiljanlega, ætli þú sért ekki sá fyrsti í sögu B&L sem hringir þangað í leit að svona efni? :lol:

Hehe, mér hefði reyndar ekki dottið í hug að reyna það nema af því að ég fann gamlan þráð hér þar sem einhver hafði fengið þetta hjá þeim fyrir klink. :-)

Þetta var reyndar nokkuð vinsælt á sínum tíma ef mig misminnir ekki. Reyndar hjá afmörkuðum hóp. :)

Re: Frosin rúða - hvar fær maður siliconáburð?

PostPosted: Thu 24. Nov 2011 23:18
by Aron Andrew
Svo er líka hægt að kaupa Silikon Spray frá Würth og fleirum

Re: Frosin rúða - hvar fær maður siliconáburð?

PostPosted: Fri 25. Nov 2011 05:40
by iar
Jss wrote:
thisman wrote:
ValliFudd wrote:
thisman wrote:Já og ég var búinn að bjalla upp í IH/B&L og þeir voru alveg lausir við að eiga þetta sull sem BMW framleiðir.

Skiljanlega, ætli þú sért ekki sá fyrsti í sögu B&L sem hringir þangað í leit að svona efni? :lol:

Hehe, mér hefði reyndar ekki dottið í hug að reyna það nema af því að ég fann gamlan þráð hér þar sem einhver hafði fengið þetta hjá þeim fyrir klink. :-)

Þetta var reyndar nokkuð vinsælt á sínum tíma ef mig misminnir ekki. Reyndar hjá afmörkuðum hóp. :)

:mrgreen:

Re: Frosin rúða - hvar fær maður siliconáburð?

PostPosted: Fri 25. Nov 2011 09:06
by thisman
Djöfull var ég hrikalega feginn í frostinu í morgun að vera búinn að bera þetta sull á! :thup:

Re: Frosin rúða - hvar fær maður siliconáburð?

PostPosted: Fri 25. Nov 2011 10:32
by gardara
thisman wrote:Djöfull var ég hrikalega feginn í frostinu í morgun að vera búinn að bera þetta sull á! :thup:

Þetta nefnilega svínvirkar, fátt leiðinlegra en að þurfa að rykkja upp frosinni hurð þegar maður er nývaknaður á morgnana.

Re: Frosin rúða - hvar fær maður siliconáburð?

PostPosted: Fri 25. Nov 2011 11:08
by thisman
gardara wrote:
thisman wrote:Djöfull var ég hrikalega feginn í frostinu í morgun að vera búinn að bera þetta sull á! :thup:

Þetta nefnilega svínvirkar, fátt leiðinlegra en að þurfa að rykkja upp frosinni hurð þegar maður er nývaknaður á morgnana.

Það er lúxusvandamál miðað við pælingarnar sem koma upp þegar rúðan fer ekki niður um þessa millimetra sem þarf þannig að hægt sé að opna hana - bara akkurat ekkert sem maður getur gert nema bíða eftir að það hlýni. :-)

Tja, nema skríða í gegnum skottið..

Re: Frosin rúða - hvar fær maður siliconáburð?

PostPosted: Fri 25. Nov 2011 13:15
by IngóJP
Ég fór einmitt að aðstoða einn í morgun sem ég er að þjónusta í vinnunni. Hann á E92 allt frosið hjá honum og hann hélt að fjarstýringin í lykilnum væri að feila hjá sér reyndi lykilinn allt frosið og ónotað þar. Endaði á því að taka bílinn af honum og smyrja allt fyrir hann svo hann ætti að geta komist inní bílinn í næsta frosti

Re: Frosin rúða - hvar fær maður siliconáburð?

PostPosted: Fri 25. Nov 2011 15:31
by Jón Ragnar
En hvernig er hægt að leysa vesen með læsinguna sjálfa?

Hef oft lent í því á bmw og vw að það sé ekki hægt að loka því að læsingin er frosin/styrð