Page 1 of 1
E34 Rafmagnsvesen

Posted:
Wed 16. Nov 2011 00:55
by sosupabbi
Langaði að spyrja áður en ég fer útí endurnýjun á rafgeymi og eða alternator hvort einhver hafi lennt í eftirfarandi á sínum E34.
Rúðuþurkur virka bara á max.
Rúður og topplúga óvirk.
Útvarp dettur inn og út en þegar það hellst inni er eins og það hafi ekkert trukk til að keyra tónlist nema mjög lágt.
Svo þurfti ég að taka loftflæðisskynjarann úr sambandi til þess að bílinn væri notkunar hæfur, hafði yfirleitt ekkert tog undir hálfri gjöf og rokkaði hægaganginn mjög(spurning hvort þetta tengist þessu eitthvað?)
Og já ég er búinn að athuga Fusible Linkinn í húddinu og það eru engar sprungur sjáanlegar á honum.
mbk. Markús
Re: E34 Rafmagnsvesen

Posted:
Wed 16. Nov 2011 04:27
by ingo_GT
Hef lent í svipuðu samt ekki á bmw,Þá var það alternatorinn á þeim bíl allavega.
Mældu hvað hann er að hlaða hjá þér.
Sambandi við loftflæðisskynjarann er ekki bara gat á loftflæðihosinni?
Re: E34 Rafmagnsvesen

Posted:
Wed 16. Nov 2011 15:36
by auðun
èg skipti um kol og dìòðubrù fyrir innan vid àri.
Re: E34 Rafmagnsvesen

Posted:
Wed 16. Nov 2011 16:06
by Einsii
Veit ekki hvernig það er í E34 en mér skilst að E38 geti farið að haga sér frekar undarlega ef svissrofinn fer að skemmast.
Þá fara allskonar raftæki að láta fáránlega.
https://www.google.com/search?btnG=1&pws=0&q=e38+ignition+switch+electrical+gremlins
Re: E34 Rafmagnsvesen

Posted:
Wed 16. Nov 2011 23:50
by HaffiG
Pottþétt jarðvesen.. farðu yfir allar helstu jarðtengingar og endurnýjaðu ef til þarf.
Myndi byrja amk á leiðslunum frá geymi og ef það breytir engu, þá fara í leiðslur t.d. í mælaborði osfrv.
Mældu líka öll öryggi..
Re: E34 Rafmagnsvesen

Posted:
Thu 17. Nov 2011 01:54
by jon mar
Re: E34 Rafmagnsvesen

Posted:
Thu 17. Nov 2011 13:46
by sosupabbi
Tók hann úr og skoðaði hann, hann er heill.
Re: E34 Rafmagnsvesen

Posted:
Thu 17. Nov 2011 21:51
by jon mar
það er stundum talað um að það séu tveir, þeas ef þú ert með geymi undir sætinu.
Re: E34 Rafmagnsvesen

Posted:
Thu 17. Nov 2011 22:04
by sosupabbi
jon mar wrote:það er stundum talað um að það séu tveir, þeas ef þú ert með geymi undir sætinu.
Geymirinn er í húddinu og það er enginn link undir aftursætinu eins og í 750 hjá mér

Re: E34 Rafmagnsvesen

Posted:
Thu 17. Nov 2011 22:52
by jon mar
það þarf samt ekki nema hárfína sprungu í þessu til að skapa vandamál