Page 1 of 2

E38 Mikill víbringur á 80km +

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 12:57
by Subbi
Setti styling 95 19tommu undir E36

Jæja bíllinn er eins og draumur á innanbæjarrúntinum en svo ef farið er í 80km eðayfir fer allt að skjálfa illilega

Var bent á aftari fóðringar og jafnvel upphengjur ? finnst það ólíklegt þar sem það tístir ekki eða skrölltir neitt í þessum undirvagnshlutum þegar ekið er á ósléttu og bílinn var tekinn extra vel út í brautini hjá Aðalskoðun í Reykjanesbæ hristur vel og vandlega og ekkert athugavert sem Pálmi fann við þá skoðun og allt virðist tipp topp þar og hann er eðlilegur á vetrardekkjunum og gömlu 16 tommu sumardekkjunum á orginalfelgunum.

Felgurnar eiga að vera vel ballanseraðar spurning um að láta gera það aftur en er farin að gruna miðjuskekkju á amk einni felgu svo þá er bara að láta laga það ef það er hægt hjá Áliðjuni eða Felgur.is

En getur það verið að það hafi þessi áhrif að það vantar plastfóðringarnar sem eiga að koma á nafið þar sem rennt var úr þessum miðjum til að passa á e39 bíl og því situr hún ekki stíf á nafinu eins og hún ætti að gera

Komið með svör úr viskubrunni ykkar Kraftsverjar :)

Re: E38 Mikill víbringur á 80km +

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 12:58
by Alpina
Er búið að renna fyrir E39... þeas 74.1mm vs 72.6

Subbi wrote:
En getur það verið að það hafi þessi áhrif að það vantar plastfóðringarnar sem eiga að koma á nafið þar sem rennt var úr þessum miðjum til að passa á e39 bíl og því situr hún ekki stíf á nafinu eins og hún ætti að gera

Komið með svör úr viskubrunni ykkar Kraftsverjar :)

Re: E38 Mikill víbringur á 80km +

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 13:46
by Subbi
amms það er búið að renna þær Sveinbjörn

Viktor gaf mér þessar felgur og þær voru óaðfinnanlegar undir e39 535 sem hann átti

Re: E38 Mikill víbringur á 80km +

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 13:54
by sosupabbi
Subbi wrote:amms það er búið að renna þær Sveinbjörn

Viktor gaf mér þessar felgur og þær voru óaðfinnanlegar undir e39 535 sem hann átti

Vantar þá ekki bara miðjuhringina(plast hringina), getur myndast titringur ef þeir eru ekki.

Re: E38 Mikill víbringur á 80km +

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 14:14
by Alpina
sosupabbi wrote:
Subbi wrote:amms það er búið að renna þær Sveinbjörn

Viktor gaf mér þessar felgur og þær voru óaðfinnanlegar undir e39 535 sem hann átti

Vantar þá ekki bara miðjuhringina(plast hringina), [b]getur myndast titringur ef þeir eru ekk[/b]i.


BINGO

getur er ekki orðið, það myndast víbringur

Re: E38 Mikill víbringur á 80km +

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 18:25
by Subbi
redda mér þessum hringjum og sjá svo til :) vona að það séu þeir

Re: E38 Mikill víbringur á 80km +

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 21:13
by Danni
Það getur myndast alveg SVAKALEGUR víbringur. Þetta er pottþétt málið. N1 í Fellsmúla á að eiga þetta til.

Re: E38 Mikill víbringur á 80km +

PostPosted: Mon 07. Nov 2011 02:00
by Subbi
Takk strákar ég byrja allavega að tjekka á þessum hringjum og vona svo sannarlega að það sé ekki annað :)

Re: E38 Mikill víbringur á 80km +

PostPosted: Mon 07. Nov 2011 10:51
by Mazi!
Alpina wrote:
sosupabbi wrote:
Subbi wrote:amms það er búið að renna þær Sveinbjörn

Viktor gaf mér þessar felgur og þær voru óaðfinnanlegar undir e39 535 sem hann átti

Vantar þá ekki bara miðjuhringina(plast hringina), [b]getur myndast titringur ef þeir eru ekk[/b]i.


BINGO

getur er ekki orðið, það myndast víbringur



nei ég hef oft rönnað felgur sem þyrftu miðjuhringi á bæði 4x100 og 5x120 og enginn víbringur.

Þetta eru mjög sennilega samt miðjuhringir sem þarf til að losna við víbringinn í þessu tilfelli.

Re: E38 Mikill víbringur á 80km +

PostPosted: Mon 07. Nov 2011 18:07
by Alpina
Mazi! wrote:

nei ég hef oft rönnað felgur sem þyrftu miðjuhringi
á bæði 4x100 og 5x120 og enginn víbringur.

Þetta eru mjög sennilega samt miðjuhringir sem þarf til að losna við víbringinn í þessu tilfelli.


:shock:

Re: E38 Mikill víbringur á 80km +

PostPosted: Mon 07. Nov 2011 21:27
by HAMAR
Ég þurfti að nota miðjuhringi á felgur undir 750i hjá mér en sleppti því, enginn víbringur.

Re: E38 Mikill víbringur á 80km +

PostPosted: Wed 09. Nov 2011 12:22
by Bandit79
Mitt skot á þetta er miðjuhringir og balansering.

Var með sama vandamál á E36 og þetta snarlagaðist með miðjuhringjum og balanseringu

Re: E38 Mikill víbringur á 80km +

PostPosted: Wed 09. Nov 2011 17:32
by Skúli
Ég er mjög vanur dekkjamaður og ég legg til að þú setjir felgurnar í balanseringa aftur og horfir á þær á meðan þær snúast í balanseringarvélinni, uppá að sjá skekkjuna. Það er ekki víst að það þurfi að setja mörg grömm af blýum á skakkar felgur. Mjög mikilvægt að þær séu balanseraðar þannig að þú setjir blý bæði á innri og ytri kant á felgununni.

Í öðru lagi þá mæli ég með því að hafa stýringar. Þú getur farið á bílnum á renniverkstæði (sem ég man ekki hvað heitir akkúrat núna) sem er staðsett ská á móti Vínbúðinni Heiðrúnu í hálsahverfinu í Árbænum. Þetta er á bakvið húsið. Hann mælir út hvaða stærð af stýringum þú þarft og smíðar þær svo fyrir þig. Mig minnir að ég hafi borgað einhvern 2-3 þúsund kall fyrir þessa frábæru þjónustu.

Í þriðja lagi þá gætu dekkin hjá þér verið vírslitin, en það er síðasti kosturinn sem þú ættir að kanna.

Re: E38 Mikill víbringur á 80km +

PostPosted: Mon 21. Nov 2011 03:35
by Kristjan PGT
Skúli wrote:Ég er mjög vanur dekkjamaður og ég legg til að þú setjir felgurnar í balanseringa aftur og horfir á þær á meðan þær snúast í balanseringarvélinni, uppá að sjá skekkjuna. Það er ekki víst að það þurfi að setja mörg grömm af blýum á skakkar felgur. Mjög mikilvægt að þær séu balanseraðar þannig að þú setjir blý bæði á innri og ytri kant á felgununni.

Í öðru lagi þá mæli ég með því að hafa stýringar. Þú getur farið á bílnum á renniverkstæði (sem ég man ekki hvað heitir akkúrat núna) sem er staðsett ská á móti Vínbúðinni Heiðrúnu í hálsahverfinu í Árbænum. Þetta er á bakvið húsið. Hann mælir út hvaða stærð af stýringum þú þarft og smíðar þær svo fyrir þig. Mig minnir að ég hafi borgað einhvern 2-3 þúsund kall fyrir þessa frábæru þjónustu.

Í þriðja lagi þá gætu dekkin hjá þér verið vírslitin, en það er síðasti kosturinn sem þú ættir að kanna.


Renniverkstæði Ægis

Re: E38 Mikill víbringur á 80km +

PostPosted: Tue 22. Nov 2011 11:53
by Subbi
hringir komnir í frá Renniverkstæði Jens í Njarðvík og þetta er eins og nýr bíll :)

Djöfulli munar um að losna við titring vegna Hjámiðjumyndunar í felgubore