Page 1 of 1

e36 325 start vesen

PostPosted: Wed 02. Nov 2011 10:38
by jonbi
er í veseni með að starta þessum bíl:
http://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=53101
er núna búinn að kaupa nýjan sveifarássynjara(http://www.ebay.com/itm/BMW-E34-E36-320-325-520-525-CRANKSHAFT-PULSE-SENSOR-/180711806535?pt=Motors_Car_Truck_Parts_Accessories&vxp=mtr&hash=item2a13435647) og ekkert breyttist, hann vill ekki fara í gang þegar maður startar stundum getur maður gefið smá bensín og það getur tekið nokkrar mínutur að ná honum í gang. en hinsvegar ef maður ýtir honum í gang þá er það ekkert mál og þarf ekkert að gefa bensín.

einhverjar hugmyndir ?

Re: e36 325 start vesen

PostPosted: Wed 02. Nov 2011 12:34
by Mazi!
Fær hann góðann neista ?

þetta er alveg eins vandamál og er búið að vera á e36 318i hjá mér

fór í gang ef hann var dreginn í gang en vildi annas ekkert fara í gang,, þetta voru ónít kerti hjá mér

Re: e36 325 start vesen

PostPosted: Sat 19. Nov 2011 20:12
by jonbi
ný kerti kominn en sama vesenið einhverjar hugmyndir ?

Re: e36 325 start vesen

PostPosted: Sat 19. Nov 2011 20:21
by oddur11
hita skynjarinn fyrir tölvuna? (eða hvað sem það heitir)

Re: e36 325 start vesen

PostPosted: Mon 21. Nov 2011 10:56
by jonbi
hvar er sá skynjari, og er hægt að mæla hvort hann sé í lagi ?

Re: e36 325 start vesen

PostPosted: Mon 21. Nov 2011 12:46
by Zed III
hann er framalega á heddinu, fyrir neðan soggreinina.

Ert þú búinn að láta lesa af bílnum ?

Re: e36 325 start vesen

PostPosted: Tue 22. Nov 2011 21:56
by Dóri-
hvernig er jarðtengið á blokkinni ?

Re: e36 325 start vesen

PostPosted: Tue 22. Nov 2011 23:08
by jonbi
Hef ekki athugað jarðtengið en kíki á það, jæja en ég var að lesa bílinn sjálfur áðan með bmw scanner 1.4 , en já fekk 4 kóða annars allt bara not found
þeir voru eftirfarandi :
1. FF [255] General reset
2. OF [015] Power on reset
3. 03 [003] Supply voltage
4. 18 [024] Digital seat occupation recognition

Ef einhver hefur einhverja hugmynd um hvað þetta er væri það mjög vel þegið.

Re: e36 325 start vesen

PostPosted: Wed 23. Nov 2011 10:54
by jonbi
Jæja búinn að googla þetta það sem ég fekk var:
(http://www.endtuning.com/bmwcodes.html)
M3.3
255 Control Unit -Internal error
15 Knock Sensor 1 (DME 1.7/DME 3.1)or Ignition Fault (DME 1.7.2)
3 Injectors (4cyl-1,3; 6/8cyl-1,5; 12cyl 2,4,6 or 8,10,12)
24 Ignition Fault Cyl 4 or 6