Page 1 of 1

Hægagangstruflanir e36 323i

PostPosted: Sun 30. Oct 2011 18:53
by geirlaugur
Sælir.

Það er aðeins farið að bera á því að hægagangurinn sé óeðlilegur hjá mér.
Bíllinn er með M50 manifoldi en mér sýnist þó ekki vera vacuum leki tengdur því.
Hægagangurinn rokkar aðeins niður fyrir 0,5 þar sem hann hangir í eðlilegu standi og hef tvisvar lent í því að hann drepi allveg á sér þegar ég hef t.d. verið að stoppa á rauðu ljósi.
Hann missir ekkert afl og er mjög eðlilegur í akstri.

Mér dettur helst í hug: bensínsía, að hann dragi falskt loft með bensíninu eða hægagangsskynjari.

Hvað haldið þið ?

Re: Hægagangstruflanir e36 323i

PostPosted: Sun 30. Oct 2011 19:17
by sosupabbi
Hugsa að hann sé amk ekki að taka falskt loft með bensíninu, venjulega keyra þessar dælur meira en nóg bensín í gegn og ef það er gat einhverstaðar þá fer bensínið yfirleitt út en ekki loft inn.

Re: Hægagangstruflanir e36 323i

PostPosted: Wed 02. Nov 2011 01:31
by geirlaugur
Það er rétt hjá þér.
Gæti líka verið að olíuskiljan/ vacum pungurinn sé að gefa sig eða barkinn frá henni og að ventlalokinu sé skaddaður og hann dragi smá loft þar inn.

Re: Hægagangstruflanir e36 323i

PostPosted: Wed 02. Nov 2011 20:22
by geirlaugur
Gangurinn er semsagt rokkandi í lausagangi.
Stundum þegar ég ræsi hann kaldan þá fer snúningurinn beint í 2,000 snúninga.

Re: Hægagangstruflanir e36 323i

PostPosted: Wed 02. Nov 2011 21:05
by Jón Ragnar
Hljómar bara mjög svipað og hjá mér :lol: :thdown:

Re: Hægagangstruflanir e36 323i

PostPosted: Thu 03. Nov 2011 00:11
by Axel Jóhann
Já, ég eins og ég nefndi við þig.

Re: Hægagangstruflanir e36 323i

PostPosted: Sat 12. Nov 2011 20:19
by geirlaugur
Sælir.

Er búinn að þjöppumæla og þjappan er í fínu lagi.
Er búinn að skipta um öll kerti.
Er búinn að skipta um loftflæðiskynjara.
Er aðeins búinn að leita eftir vacuum leka.
Er búinn að skipta um barkann frá Olíuskilju og uppí ventlalok.

Á eftir að athuga með hægagangsmótorinn og aðra skynjara.

Vandinn lýsir sér þannig núna að í lausagangi þá er snúningshraðamælirinn bara eðlilegur en frekar grófur gangur þegar maður hlustar á pústið.

Hvað telja menn líklegast ?

Re: Hægagangstruflanir e36 323i

PostPosted: Sat 12. Nov 2011 21:34
by Jón Ragnar
Shit þetta hljómar ALVEG eins og hjá mér :shock: :lol:

Re: Hægagangstruflanir e36 323i

PostPosted: Sun 13. Nov 2011 00:11
by geirlaugur
Hehe þá getum við vonandi slegið tvær flugur í einu höggi og fundið lausn á þessum vanda fyrir báða bílana :)

Varst þú búinn að prófa að skipta um hægagangsmótorinn ?

Re: Hægagangstruflanir e36 323i

PostPosted: Sun 13. Nov 2011 00:21
by HaffiG
Getur verið að ventlafóðringar valdi þessu, þó svo að bíll reyki ekkert að ráði?

Re: Hægagangstruflanir e36 323i

PostPosted: Sun 13. Nov 2011 00:30
by geirlaugur
Þá myndi hann væntanlega brenna olíu, hann reykir ekkert hjá mér.
Finnst líklegt að eitt háspennukefli sé lélegt eða farið hjá mér.