Page 1 of 1
Miðstöð blæs engu í E36

Posted:
Fri 21. Oct 2011 20:50
by zodiac25
Sælir, það kom upp vandamál í bílnum hjá mér að miðstöðin blæs engu lofti, sama hver stillingin er á miðstöðvar elementinu.
Ég athugaði hvort öryggi væri farið en, það var í lagi. Það skiptir engu máli hvort bíllinn sé heitur eða kaldur, hún blæs engu lofti.
Veit ekki hvort það skipti eitthverju máli, en þetta er tvískipt digital miðstöð.
Ef eitthver lumar á ráði við þessu væri það vel þegið.
Fyrir fram þökk, Guðni.
Re: Miðstöð blæs engu í E36

Posted:
Sat 22. Oct 2011 02:46
by HaffiG
Mótstaðan?
Annars ef þetta er '96 módel, þá minnir mig að þetta hafi verið galli í stýringunni í sumum af þessum bílum, en ég gæti verið að fara með fleipur.
edit:
Ef þetta er PA390, þá held ég alveg örugglega að það sé búið að skipta um mótstöðuna í honum. Spurning hvort þetta sé ekki bara stýringin sjálf?
Re: Miðstöð blæs engu í E36

Posted:
Sun 23. Oct 2011 01:25
by sosupabbi
HaffiG wrote:Mótstaðan?
Annars ef þetta er '96 módel, þá minnir mig að þetta hafi verið galli í stýringunni í sumum af þessum bílum, en ég gæti verið að fara með fleipur.
edit:
Ef þetta er PA390, þá held ég alveg örugglega að það sé búið að skipta um mótstöðuna í honum. Spurning hvort þetta sé ekki bara stýringin sjálf?
Hljómar voðalega eins og stýringin eða mótorinn, lennti í því á E38 að hann bara fór ekki í gang, nema þegar ég tók hann úr og tengdi við rafgeymi þá drullaðist hann í gang ef ég hjálpaði honum með höndonum

Re: Miðstöð blæs engu í E36

Posted:
Tue 25. Oct 2011 12:36
by zodiac25
Takk fyrir svörin strákar, ég athuga hvort þetta sé stýringin