Page 1 of 1
Engage Position P - BMW 520D 2006

Posted:
Tue 18. Oct 2011 19:55
by Bumbklaatt
Sælir
Er að lenda svolítið oft í því að fá þessa villumeldingu uppá skjáinn þegar ég set bílinn í P og drep á. Búinn að gúggla þetta aðeins og sýndist á einni síðu að BMW hefði innkallað þessi módel útaf þessari bilun. Vitið þið hvað er í gangi og hvort þetta sé kostnaðarsöm viðgerð?
bkv
Re: Engage Position P - BMW 520D 2006

Posted:
Tue 18. Oct 2011 20:45
by slapi
Það sem er langlíklegast að hafi gerst hjá þér er það að það dettur klink úr öskubakkanum ofaní miðjustokkinn og þaðan liggur leiðin eins og trekt beint niður á tengi sem er fyrir spóluna sem festirstönga í Park meðal annars. Ef klinkið nær að staðsetja sig vel þá brotnar tengið næst þegar sett er í park og skiptingn missir samband við þessa spólu. Þetta þarf að sannreyna með aflestri og ég myndi telja að viðgerðin sé svona uppá kannski 2 tíma og fer þá kostnaður eftir tímagjaldi hvers verkstæðis fyrir sig.
Ekki geyma klink í öskubakkanum á E60....
Re: Engage Position P - BMW 520D 2006

Posted:
Tue 18. Oct 2011 20:57
by Alpina
Re: Engage Position P - BMW 520D 2006

Posted:
Tue 18. Oct 2011 21:45
by Bumbklaatt
Svei mér þá, ég held þetta sé rétt hjá þér. Sá klikk í öskubakkanum um daginn sem virðist geta dottið á milli. Takk fyrir gott svar, læt kíkja á þetta.
Svo er ekkert rafmagn í sígarettukveikjaplögginu,það gæti kannski verið svona klink afleiðing líka. Læt kíkja á þetta.