Page 1 of 1
E36 choke-ar þegar hann hitnar

Posted:
Sat 15. Oct 2011 10:13
by albertbe02
Sælir meistarar
Mig langaði að athuga hvort einhver kannast við svona einkenni. Er með E36 Coupe 2000 módel. Þegar hann er kaldur,
er allt í góðu en um leið og hann er orðinn smá heitur og alltaf á sama stað á hitamælinum, byrjar hann að choke-a við inngjöf.
Það er í lagi ef í gef bensínið í botn, en ef ég stíg eðlilega á bensíngjöfina, þá choke-ar hann.
Einstaka sinnum er eins og hann hristi þetta af sér og er góður í smá tíma. Getur verið 10 mín og getur verið 1 dagur. Svo fer allt í sama farið aftur.
Mig grunaði að hedd pakkning væri að fara en það gæti verið eitthvað annað.
Hefur einhver lent í álíka sjúkdómsgreiningu?
Re: E36 choke-ar þegar hann hitnar

Posted:
Sat 15. Oct 2011 20:27
by gardara
Hvort er þetta e36 eða e46? e36 kom ekki árið 2000.
Annars skýt ég á léleg háspennukefli
Re: E36 choke-ar þegar hann hitnar

Posted:
Sat 15. Oct 2011 21:01
by albertbe02
Það er skrítið. Er nokkuð viss um að þetta sé E36. Það stendur allavega í skráningaskírteininu
að fyrsti skráningadagur sé á árinu 2000.
Re: E36 choke-ar þegar hann hitnar

Posted:
Sat 15. Oct 2011 21:33
by sosupabbi
albertbe02 wrote:Það er skrítið. Er nokkuð viss um að þetta sé E36. Það stendur allavega í skráningaskírteininu
að fyrsti skráningadagur sé á árinu 2000.
Er hann þá ekki innfluttur 2000?
Re: E36 choke-ar þegar hann hitnar

Posted:
Sun 16. Oct 2011 10:08
by albertbe02
sosupabbi wrote:Er hann þá ekki innfluttur 2000?
Það má vel vera.
Það breytir því ekki að hann choke-ar eins og enginn sé morgundagurinn.
Re: E36 choke-ar þegar hann hitnar

Posted:
Sun 16. Oct 2011 13:35
by gardara
Prófaðu að skoða kerti og háspennukefli, prófaðu líka að aftengja MAF og sjáðu hvort það breytist eitthvað.
Re: E36 choke-ar þegar hann hitnar

Posted:
Sun 16. Oct 2011 17:41
by albertbe02
gardara wrote:Prófaðu að skoða kerti og háspennukefli, prófaðu líka að aftengja MAF og sjáðu hvort það breytist eitthvað.
Ég er búinn að skipta um kerti en hef ekki skoðað háspennukeflið. Hvað er MAF?
Re: E36 choke-ar þegar hann hitnar

Posted:
Sun 16. Oct 2011 21:56
by sosupabbi
albertbe02 wrote:gardara wrote:Prófaðu að skoða kerti og háspennukefli, prófaðu líka að aftengja MAF og sjáðu hvort það breytist eitthvað.
Ég er búinn að skipta um kerti en hef ekki skoðað háspennukeflið. Hvað er MAF?
MAF er loftflæðiskynjarinn í bílnum og er staðsettur á loftintakinu fyrir aftan loftsíubox, sennilega auðveldast að finna hann með því að skoða hvar snúran pluggast við loftinntakið. Getur verið gott að taka hann úr bílnum og hreinsa hann með contact sprayi, þaes nálina inní.
Re: E36 choke-ar þegar hann hitnar

Posted:
Mon 17. Oct 2011 00:32
by Axel Jóhann
hvaða vél ertu með, 318, 320 325?
Re: E36 choke-ar þegar hann hitnar

Posted:
Mon 17. Oct 2011 10:55
by albertbe02
Axel Jóhann wrote:hvaða vél ertu með, 318, 320 325?
Þetta er 316 bíll. Það væri áhugavert að prófa að þrífa þenna loftflæðiskynjara.