Page 1 of 1

BMW E32 rafmagnslaus

PostPosted: Wed 12. Oct 2011 20:17
by BMWPOWER
Bíllinn varð rafmagnlaus og er læstur, og það virkar ekki að opna bílinn, er einhver sem getur sagt mér hvað ég get gert?

Re: BMW E32 rafmagnslaus

PostPosted: Wed 12. Oct 2011 21:08
by Alpina
BMWPOWER wrote:Bíllinn varð rafmagnlaus og er læstur, og það virkar ekki að opna bílinn, er einhver sem getur sagt mér hvað ég get gert?


Opnar skottið með lyklinum,,, ferð í skottljósið og tekur peruna úr ATH það er einnig ljós undir hillunni,, og setur startkappla á vírana,,

BRÚNN , er jörð ,, gætir þurft smá hjálp við að halda vírunum þeir eru svo þétt saman .. en þetta er nóg til að þú getir opnað bílinn

Re: BMW E32 rafmagnslaus

PostPosted: Wed 12. Oct 2011 22:12
by ömmudriver
Alpina wrote:
BMWPOWER wrote:Bíllinn varð rafmagnlaus og er læstur, og það virkar ekki að opna bílinn, er einhver sem getur sagt mér hvað ég get gert?


Opnar skottið með lyklinum,,, ferð í skottljósið og tekur peruna úr ATH það er einnig ljós undir hillunni,, og setur startkappla á vírana,,

BRÚNN , er jörð ,, gætir þurft smá hjálp við að halda vírunum þeir eru svo þétt saman .. en þetta er nóg til að þú getir opnað bílinn


Þetta var ekki hægt að gera á sjöunni minni.

Re: BMW E32 rafmagnslaus

PostPosted: Wed 12. Oct 2011 22:30
by sh4rk
skrítið að þetta hafi ekki verið hægt að gera á þinni 7u Arnar, því að allar þær 7 línur sem ég hef átt þá hefur þetta alltaf virkað nema á einni en það var út af því að það var annar lykill af skottinu og ég átti hann ekki til

Re: BMW E32 rafmagnslaus

PostPosted: Wed 12. Oct 2011 22:35
by srr
sh4rk wrote:skrítið að þetta hafi ekki verið hægt að gera á þinni 7u Arnar, því að allar þær 7 línur sem ég hef átt þá hefur þetta alltaf virkað nema á einni en það var út af því að það var annar lykill af skottinu og ég átti hann ekki til

Virkaði heldur ekki á einum 735i hjá mér.
En það var vegna þess að helvxxxx blaðið brotnaði í skránni og ég gat ekki opnað skottið :lol:

Re: BMW E32 rafmagnslaus

PostPosted: Wed 12. Oct 2011 23:55
by .
boraðu skott cylenderinn út ef þú finnur ekki lykil að honum finndu barn fáðu leyfi frá umráðamönnum þess til að láta það skríða í gegnum hjónadjöfullinn og opna húddið.

Re: BMW E32 rafmagnslaus

PostPosted: Wed 12. Oct 2011 23:57
by srr
. wrote:boraðu skott cylenderinn út ef þú finnur ekki lykil að honum finndu barn fáðu leyfi frá umráðamönnum þess til að láta það skríða í gegnum hjónadjöfullinn og opna húddið.

Hjónadjöfulinn ??? :D

Ég veit að þú ert að meina skibagið en hvaðan kemur nafnið

Re: BMW E32 rafmagnslaus

PostPosted: Thu 13. Oct 2011 00:03
by .
srr wrote:
. wrote:boraðu skott cylenderinn út ef þú finnur ekki lykil að honum finndu barn fáðu leyfi frá umráðamönnum þess til að láta það skríða í gegnum hjónadjöfullinn og opna húddið.

Hjónadjöfulinn ??? :D

Ég veit að þú ert að meina skibagið en hvaðan kemur nafnið


þetta heitir hjónadjöfull á íslensku :wink:

Re: BMW E32 rafmagnslaus

PostPosted: Thu 13. Oct 2011 00:05
by .
og ég vill taka það framm að til að ná barninu aftur úr bílnum getur það farið sömu leið til baka eða þá að þú tekur kapla leggur á pólana framm í húddi og opnar bílinn með lykli

Re: BMW E32 rafmagnslaus

PostPosted: Thu 13. Oct 2011 05:12
by íbbi_
maður fær nú nokkur flash backs frá good ol E32 days, það er eitthvað áhveðið trikk frá framleiðanda þegar bíllinn er á hard lock, man ekki hvort það var að halda húninum uppi meðan þú snýrð lyklinum.

ég var einhverntímann að spá í að kaupa E32 750, þegar ég ætlaði að fá að prufa hann þá var hann rafmagnslaus og á hard lock,og ég náði að troða mér í gegnum hjónadjöfulinn sjálfur og opna húddið, það var frekar spes að vippa armpúðanum svo niður aftur og fara út þá leiðina

Re: BMW E32 rafmagnslaus

PostPosted: Thu 13. Oct 2011 17:40
by sosupabbi
Það er líka hægt að gera þetta í gegnum kastarana í framstuðaranum ef þú nærð ekki að opna skottið, sömuleiðis stefnuljósin í brettonum, virkaði alltaf á E38

Re: BMW E32 rafmagnslaus

PostPosted: Thu 13. Oct 2011 21:33
by auðun
vá hvað mér hefði aldrei dottið þetta í hug að gefa straum inn um ljósavíra.