Útleiðsla, lélegur geymir eða bæði? E36 325i

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Útleiðsla, lélegur geymir eða bæði? E36 325i

Postby JOGA » Tue 11. Oct 2011 14:53

Sælir,

Nokkrar spurningar.

Ég geymi 325i inni og nota lítið. Var með hann í hleðslu í nótt og fór út snemma í morgun í kuldan.
Eftir æfingu ca. 1,5 - 2 klst seinna ætlaði ég að setja hann í gang en hann var þá ekki með nægan straum til að starta.

Bíllinn startar eftir stutta rúnta en ef beðið er í e-h tíma þá lætur hann svona.
Hann dugaði allan daginn fyrir nokkrum vikum þegar það var meiri hiti úti.

Annað. Bíllinn startar svolítið tregt þó að bíllinn hafi verið í hleðslu alla nóttina. Þ.e. startari snýst hægt og letilega.
Þegar gefið er start er hann mun hressari í gang. Sérstaklega ef bíllinn sem gefur start er af "réttri" stærð.

Spurningar:
Geta rafgeymaþjónusturnar sagt mér hvort það sé geymirinn sem er kapút eða hvort um sé að ræða drain?
Hvar er best að kaupa geymi?
Hvað er algeng orsök á svona rafmagnsdrain í E36?.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Re: Útleiðsla, lélegur geymir eða bæði? E36 325i

Postby ömmudriver » Tue 11. Oct 2011 15:00

Hvað er þetta gamall geymir?

Gamlir/ þreyttir geymar þola illa kulda og þá sérstaklega frost og þar af leiðandi þarf að skipta þeim út.

Láttu mæla rafgeymirinn s.s álagsmæla hann, þú getur látið Rafgeymasöluna í Hfj. gera það fyrir þig og eflaust fleirri.

Ég keypti minn 100Ah geymir hjá N1 en hann er frá Bosch og uppbyggður sérstaklega fyrir Luxury sedans en þú þarft minni geymir án vafa. En ég keypti minn hjá N1 vegna þess að þar var besta verðið á þessari stærð af geymir.

Athugaðu verðin t.d. hjá Skorra, Rafgeymasölunni og N1 ef þú ferð út í það að versla nýjan geymir.

Ps. Færð góðan afslátt hjá N1 ef þú ert í AÍH :wink:

Ástæðurnar fyrir því að geymirinn hagar sér svona geta verið:

Alternatorinn er orðinn slappur
Margir stuttir rúntar/ lítil notkun þannig að geymrinn nær aldrei fullri hleðslu
Útleiðsla eða spansgræna á geymasamböndum(hún getur nota bene verið glær)
Slappur geymir
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Re: Útleiðsla, lélegur geymir eða bæði? E36 325i

Postby gardara » Tue 11. Oct 2011 15:34

JOGA wrote:Hvar er best að kaupa geymi?



Skorri er með bestu geymana!
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: Útleiðsla, lélegur geymir eða bæði? E36 325i

Postby JOGA » Tue 11. Oct 2011 15:46

gardara wrote:
JOGA wrote:Hvar er best að kaupa geymi?



Skorri er með bestu geymana!


Takk fyrir aðstoðina strákar.
Ætla að kíkja í Skorra eftir vinnu og sjá hvað þeir segja.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 5 guests