Digitalmiðstöð blæs heitu farþegameginn. (e34)

Posted:
Fri 07. Oct 2011 15:54
by Vlad
Jæja nú er komið smá vesen þar sem að digitaldraslið blæs bara heitu farþegameginn en virkar fínt ökumannsmeginn.
Gæti kannski stafað af því að stilligæinn fyrir hitann er að ég held kapútt farþegameginn, en mér finnst það ólíklegt þar sem að þetta virkaði fínt áður fyrr.
Svo nú spyr ég ykkur snillingana hvað mögulega gæti verið að hér?
Re: Digitalmiðstöð blæs heitu farþegameginn. (e34)

Posted:
Fri 07. Oct 2011 16:36
by saemi
solenoid dótið frammi í húddi....

Re: Digitalmiðstöð blæs heitu farþegameginn. (e34)

Posted:
Fri 07. Oct 2011 23:14
by Omar_ingi
saemi wrote:solenoid dótið frammi í húddi....

fyrirgefid vinir minir en hvada junit er þetta?
Re: Digitalmiðstöð blæs heitu farþegameginn. (e34)

Posted:
Fri 07. Oct 2011 23:19
by ömmudriver
Omar_ingi wrote:saemi wrote:solenoid dótið frammi í húddi....

fyrirgefid vinir minir en hvada junit er þetta?
Þetta er unitið sem stýrir kælivatninu inná hita elementið í miðstöðinni og er þetta staðsett á hvalbaknum, vinstra megin fyrir ofan bremsuvökvaforðabúrið í E32 og E34.
Re: Digitalmiðstöð blæs heitu farþegameginn. (e34)

Posted:
Sat 08. Oct 2011 18:39
by maggib
þetta var einmitt bilað í e32 hjá mér.
blés alltaf heitu bílstjóramegin, nennti aldrei að gera neitt í því
sá sem keypti bílinn fékk bilunina bara frítt með!