Page 1 of 1

Gangvesen

PostPosted: Thu 22. Sep 2011 18:30
by Hansuman
Sæl verið þið hér gott fólk

Er með E36 1800 1994 sem grípur ekki hægagang eftir start. Maður gæti haldið að þetta væri einhverskonar insogsvandamál en er ekki bundið við að vélin sé köld, hún þarf alltaf hjálp með bensíngjöfinni í smá tíma eftir gangsetningu til að geta gengið í hægagangi...?

Kv - Hansuman

Re: Gangvesen

PostPosted: Thu 22. Sep 2011 18:32
by HaffiG
Gengur hann á öllum cyl?

Loftflæðiskynjari?

Re: Gangvesen

PostPosted: Thu 22. Sep 2011 18:41
by Hansuman
Já hann nefninlega gengur eins og kettlingur þegar hann er kominn á lagið - hvar er þessi skynjari segirðu ?

Re: Gangvesen

PostPosted: Thu 22. Sep 2011 18:43
by HaffiG
Hansuman wrote:Já hann nefninlega gengur eins og kettlingur þegar hann er kominn á lagið - hvar er þessi skynjari segirðu ?

Fyrir aftan loftsíuboxið, milli boxins og throttle-body'sins

Re: Gangvesen

PostPosted: Thu 22. Sep 2011 18:47
by Hansuman
Okey, ég tékka á þessu og læt heyra hvernig fer.

Þrusu þakkir

Hansuman

Re: Gangvesen

PostPosted: Thu 22. Sep 2011 18:57
by HaffiG
Reyndar spurning ef hann er að ganga eðlilega eftir það, þá finnst mér nú ólíklegra að það sé loftflæðiskynjarinn. Myndi þó ekki útiloka það, en ég held að það sé hægagangspöngur í þessum bíl sem er staðsettur undir soggrein. Spurning hvort hann sé að gefa upp öndina?

Re: Gangvesen

PostPosted: Sat 24. Sep 2011 23:18
by Hansuman
Jæja - komið í ljós að það var komið gat á litlu loft slönguna sem fer inná sogreinina að aftanverðu. Veit samt ekki hvort þetta gat svo orsakað það að releyið sem keyrir bensíndæluna fór líka? ..við það festist líka bensíndælan og ég varð að rífa hana úr til að losa hana.

Stuð í bimmanum!!

kveðja og þakkir - Hansuman

Re: Gangvesen

PostPosted: Thu 01. Dec 2011 20:26
by Hansuman
Það má eyða þessu.