Page 1 of 1

Hlutfall úr 188 drifi í 210 drif, passar það?

PostPosted: Tue 20. Sep 2011 13:56
by Danni
Ég var ss. að taka 188 drif með 3.15 hlutfalli úr E32 730i V8 í gær og setja 210 drif með 3.91 hlutfalli í hann í staðinn. Í kjölfarið er hann í alveg fáránlega háum snúningum í 100 km/h í fimmta gír. Næstum 3000 :shock:

Svo ég er að pæla, væri hægt að taka hlutfall úr 188 drifi og færa það yfir í 210 drif? Hvar væri þá best að láta gera það?

Re: Hlutfall úr 188 drifi í 210 drif, passar það?

PostPosted: Tue 20. Sep 2011 14:18
by birkire
nei 188 og 210 eru mm og standa fyrir þvermál kransins

99% á þessu, endilega leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál

Re: Hlutfall úr 188 drifi í 210 drif, passar það?

PostPosted: Tue 20. Sep 2011 14:22
by hauksi
Danni wrote:Ég var ss. að taka 188 drif með 3.15 hlutfalli úr E32 730i V8 í gær og setja 210 drif með 3.91 hlutfalli í hann í staðinn. Í kjölfarið er hann í alveg fáránlega háum snúningum í 100 km/h í fimmta gír. Næstum 3000 :shock:

Svo ég er að pæla, væri hægt að taka hlutfall úr 188 drifi og færa það yfir í 210 drif? Hvar væri þá best að láta gera það?


en hvað er hann snöggur uppí hundrað :?:

Re: Hlutfall úr 188 drifi í 210 drif, passar það?

PostPosted: Tue 20. Sep 2011 14:22
by Einarsss
Eflaust nokkrir sem hefðu áhuga á að fá þetta hlutfall úr 188 drifinu :D

Re: Hlutfall úr 188 drifi í 210 drif, passar það?

PostPosted: Tue 20. Sep 2011 15:04
by Danni
Getur verið að þetta 188 drif dettur á sölu einhverntímann á næstunni, ég á það ekki svo ég get ekki sagt til um það.

En ætli það verði þá ekki bara fundið opið 210 drif með heppilegra hlutfalli og læsingin færð á milli.

Eða annað læst drif með betra hlutfalli og skip við einhvern sem vill setja bílinn sinn upp fyrir hraðara upptak en ekki krús :D

hauksi wrote:en hvað er hann snöggur uppí hundrað :?:


Eitthvað sneggri en hann var, en það er ekki eins og það var búið að mæla það fyrir.

Re: Hlutfall úr 188 drifi í 210 drif, passar það?

PostPosted: Tue 20. Sep 2011 22:09
by sh4rk
Er hann ekki á meira en 3000 rpm í hundrð á 3.91 hlutfalli???
Ég var með 3.45 drif í mínum 740 og hann var á rúmlega 2700 rpm í hundrað.
En Einar ég yrði hissa ef einhver myndi vilja hlutfallið úr 188 drifinu því ég var einmitt með svona drif til sölu einhverntíman og það vildi það enginn

Re: Hlutfall úr 188 drifi í 210 drif, passar það?

PostPosted: Tue 20. Sep 2011 22:15
by Einarsss
3.15 er perfect fyrir túrbó bíla með G260 kassanum, er sjálfur með 3.25.

Re: Hlutfall úr 188 drifi í 210 drif, passar það?

PostPosted: Tue 20. Sep 2011 22:17
by hauksi
ég er með 3.45 hlutfall og hann er bara í 2100 - 2200 snúningum á hundraðinu. En ég er með sjálfskiptingu.

Re: Hlutfall úr 188 drifi í 210 drif, passar það?

PostPosted: Tue 20. Sep 2011 22:19
by sh4rk
já ég veit ég einmitt hélt að þetta væri ideal fyrir E30 turbo guttana en enginn vildi þetta.
En þetta væri betra fyrir þig í þitt svapp eða jafnvel 2.93.
Já það er pínu annað að vera með ssk og þetta hlutfall.
Minn bíll er bsk

Re: Hlutfall úr 188 drifi í 210 drif, passar það?

PostPosted: Tue 20. Sep 2011 22:27
by Einarsss
Ætla sjá hvernig 3.25 hagar sér með m60b30 í e30, gæti trúað samt að 2.97 væri ideal þegar öflugri mótor fer í seinna.

Re: Hlutfall úr 188 drifi í 210 drif, passar það?

PostPosted: Tue 20. Sep 2011 22:34
by sh4rk
Allavega yrði fyrsti gírinn ekki mikið notaður á þessu hlutfalli með 4.0 eða stærri vél á 3.25 hlutfallinu og ég tek stundum af stað í 2 gír hjá mér og finn ekki mikið fyrir því