Page 1 of 1

Tengingar fyrir bakkljós í e36

PostPosted: Thu 15. Sep 2011 10:18
by Zed III
Ég þarf að tengja hjá mér bakkljós í Z3 (sama loom og í e36) eftir að ég skipti úr manual loomi yfir í automatic loom (til að fá vanos).

Image

Það sem ég hef lesið mig til og fundið út á gamla loominu þá eru það plögg númer 22 og 10 sem eru rásin fyrir bakkljósin. Eins og ég skil rásina þá er rofinn í gírkassanum opinn þegar bíllinn er ekki í bakki og þegar það er sett í bakk lokast rásinn og við fáum straum sem kveikir bakkljósin.

Ég ætlaði að staðfesta þetta með því að nota prufulampa og jumpera á milli og vonaðist til að fá smá lýsingu á bakkljósin en það gerðist ekki. Mögulega er of mikið viðnám í prufulampanum að rásin ræður ekki við bæði lampan og bakkljósin.

Er mér óhætt að jumpera beint þarna á milli með vír til að prufa hvort þetta sé rétt kenning hjá mér ?

Re: Tengingar fyrir bakkljós í e36

PostPosted: Fri 16. Sep 2011 17:52
by -Siggi-
Þú ættir að fá sviss straum á annan vírinn og hinn ætti að liggja í bakkljósinn.

Það er best að kaupa eða græja vír með öryggi og tengja hann á milli.

Re: Tengingar fyrir bakkljós í e36

PostPosted: Fri 16. Sep 2011 21:06
by Zed III
-Siggi- wrote:Þú ættir að fá sviss straum á annan vírinn og hinn ætti að liggja í bakkljósinn.

Það er best að kaupa eða græja vír með öryggi og tengja hann á milli.


Cool, mér datt ekki í hug að græja vír með öryggi. Mun gera það.