Page 1 of 1
hvað gerist ef ég skipti um drifhlutföll úr 3,45 í 3,07

Posted:
Wed 14. Sep 2011 09:31
by Zed III
þar sem ofurvélin m43b18 er ströppuð á bog-standard gírkassa í 316 e46.
verður þetta nokkuð ókeyrandi ?
Re: hvað gerist ef ég skipti um drifhlutföll úr 3,45 í 3,07

Posted:
Wed 14. Sep 2011 10:43
by gstuning
12.3% lengri gírar sem á sama tíma þýðir 12.3% lægri snúningar fyrir ákveðinn hraða og gír.
einnig 12.3% lægri tog margföldun í hjólin við þann hraða.
Þetta fer allt eftir hvernig þú keyrir hann, það er í raun betra að keyra undir meira álagi við lægri snúning til að viðhalda ákveðnum hraða
þ.e í stað 40% gjöf@2000rpm@90kmh að vera á 50% gjöf @1779rpm@90kmh.
Það sem gerist er að vélin þarf að skila 12.3% meira togi í 1779rpm, þetta skilar betri eyðslu útaf tvennu.
Vélin þarf að vinna minna til að fá loftið inn (hærri soggreinar þrýstingur ýtir loftinu frekar inn heldur enn að vélin þurfi að sjúga loftið inn).
Einnig minna viðnáms tap útaf lægri snúning.
Þannig að þótt að bílinn skili jafn miklari vinnu í hjólin við lægri snúning þá þarf ekki 12.3 % meiri bensín útaf minna tapi.
Árangurinn er bensín sparnaður.
Þess vegna ef maður gæti keyrt með gjöfina í botni(í það minnsta mesta soggreinar þrýsting) og mixtúruna við Lambda 1.0 á sem lægsta snúning að hann hraðar sér ekki þá fæst besta eyðslan.
Re: hvað gerist ef ég skipti um drifhlutföll úr 3,45 í 3,07

Posted:
Wed 14. Sep 2011 10:48
by Zed III
semsagt, aðeins hægari í upptaki en með lægri snúning á krús hraða ?
Re: hvað gerist ef ég skipti um drifhlutföll úr 3,45 í 3,07

Posted:
Wed 14. Sep 2011 10:51
by gstuning
Já í raun.
Re: hvað gerist ef ég skipti um drifhlutföll úr 3,45 í 3,07

Posted:
Wed 14. Sep 2011 10:55
by Zed III
cheers Gunni.
Veit sveimér ekki hvort þetta sé þá á það bætandi, þetta er nú ekki það sneggsta í upptakinu núna.
Re: hvað gerist ef ég skipti um drifhlutföll úr 3,45 í 3,07

Posted:
Wed 14. Sep 2011 17:51
by Axel Jóhann
gstuning wrote:
Þannig að þótt að bílinn skili jafn miklari vinnu í hjólin við lægri snúning þá þarf ekki 12.3 % meiri bensín útaf minna tapi.
Árangurinn er bensín sparnaður.
Gunnar, SERIOUSLY?

Re: hvað gerist ef ég skipti um drifhlutföll úr 3,45 í 3,07

Posted:
Sat 24. Sep 2011 21:28
by íbbi_
Zed III wrote:semsagt, aðeins hægari í upptaki en með lægri snúning á krús hraða ?
þetta er alveg lýsandi dæmi um hærra hlutfall
Re: hvað gerist ef ég skipti um drifhlutföll úr 3,45 í 3,07

Posted:
Sat 03. Dec 2011 18:27
by Omar_ingi
En ef við breitum spurninguni yfir í að mótorinn sé M50B25? með 3:07 drifi undir

?
Re: hvað gerist ef ég skipti um drifhlutföll úr 3,45 í 3,07

Posted:
Sat 03. Dec 2011 20:18
by Axel Jóhann
Hentar flott, þeir eru 3.15 orginal