Ef ég tek "muffler delete" á e39 530d, verður Frumherji brjálaður?
Re: Fjarlægja hljóðkút og hvarfa úr 530D?
Posted: Sun 11. Sep 2011 01:50
by Subbi
ferð bara í BJB í firðinum lætur setja flangs á það sem þú tekur úr og lætur svosmíða rör með flöngsum og tekur sótsíuna úr eftir skoðun.Og hljóðkútin en myndi nú hafa eina túbu allavega á Diesel
Re: Fjarlægja hljóðkút og hvarfa úr 530D?
Posted: Sun 11. Sep 2011 02:19
by slapi
Það er engin sótsía í E30 530D
Re: Fjarlægja hljóðkút og hvarfa úr 530D?
Posted: Sun 11. Sep 2011 03:19
by Axel Jóhann
slapi wrote:Það er engin sótsía í E30 530D
Var það special týpa af E30?
Re: Fjarlægja hljóðkút og hvarfa úr 530D?
Posted: Sun 11. Sep 2011 10:37
by slapi
Lang flottasta týpan
Re: Fjarlægja hljóðkút og hvarfa úr 530D?
Posted: Sun 11. Sep 2011 12:28
by Logi
Veit einhver hvaða árg. af diesel þarf að hafa kvarfa?
Það er eitthvað seinna en '95 eins og bensín...
Re: Fjarlægja hljóðkút og hvarfa úr 530D?
Posted: Sun 11. Sep 2011 13:26
by Sezar
Logi wrote:Veit einhver hvaða árg. af diesel þarf að hafa kvarfa?
Það er eitthvað seinna en '95 eins og bensín...
Heyrði einhversstaðar að hvarfi væri ekki skylda í dísel...kanski bull?
Re: Fjarlægja hljóðkút og hvarfa úr 530D?
Posted: Sun 11. Sep 2011 13:54
by Hrannar E.
Engin hvarfi í mínum og ekkert sett útá það í skoðun
Re: Fjarlægja hljóðkút og hvarfa úr 530D?
Posted: Wed 02. Nov 2011 21:20
by arnarb
Er með E36 330xd. Er að koma flott hljóð ef maður er að taka hvarfann undan ?
Re: Fjarlægja hljóðkút og hvarfa úr 530D?
Posted: Thu 03. Nov 2011 14:59
by Lindemann
Það þarf ekki hvarfakút fyrir skoðun í díselbíla.
Re: Fjarlægja hljóðkút og hvarfa úr 530D?
Posted: Thu 03. Nov 2011 15:12
by hauksi
Logi wrote:Veit einhver hvaða árg. af diesel þarf að hafa kvarfa?
Það er eitthvað seinna en '95 eins og bensín...
var það ekki 2005-06?
Re: Fjarlægja hljóðkút og hvarfa úr 530D?
Posted: Sun 06. Nov 2011 18:53
by Subbi
ég vissi bara ekki betur en það væri DPF (Sótsía) í e-39 með m57 alveg eins og í fyrstu árgerðum af E-60 sbr OT-549 sem er DEBOO og hann var einnig með hvarfakút