Page 1 of 1

E36 coupe vill ekki aflæsa hurð

PostPosted: Mon 05. Sep 2011 22:43
by BirkirB
Ef ég læsi bílnum með fjarstýringunni læsist vinstri hurðin og skottið en hægri hurðin læsist ekki nema ég ýti pinnanum sjálfur niður. Það er sama sagan ef ég ætla að opna með fjarstýringunni, ég þarf að aflæsa hurðinni að innanfrá...Eeeeeen stundum hefur það skeð að ég get ekki aflæst hægri hurðinni að innanfrá en það hefur alltaf lagast ef ég hreyfi við vírum eða plögginu í hurðinni.

En það gerist ekkert núna....hvernig get ég opnað hurðina til að skoða vírana?
Skrúfa lásinn úr?

Re: E36 coupe vill ekki aflæsa hurð

PostPosted: Mon 05. Sep 2011 23:07
by Andrynn
Image

Re: E36 coupe vill ekki aflæsa hurð

PostPosted: Mon 05. Sep 2011 23:13
by BirkirB
Tekur sig ekki...bara keyra beint í Hringrás með þetta drasl...

Re: E36 coupe vill ekki aflæsa hurð

PostPosted: Mon 05. Sep 2011 23:14
by ValliFudd
Er glugginn með vesen hjá þér, það er að segja að fara upp alveg þegar þú lokar hurðinni?

Re: E36 coupe vill ekki aflæsa hurð

PostPosted: Mon 05. Sep 2011 23:18
by BirkirB
Nei, rofinn er samt lélegur....teipaði eitthvað þarna...annars fer rúðan upp og niður í frosti eða miklum hita...

Re: E36 coupe vill ekki aflæsa hurð

PostPosted: Mon 12. Sep 2011 22:37
by BirkirB
Fann út hvað er að með hjálp frá Bjarka og Davíðs í Eðalbílum :thup:
Actuatorinn, sem er mekanisminn í kringum læsingarmótorinn, er í einhverju rugli þannig að hann nær ekki að ýta á rofa sem fær mótorinn í gang. Ef mótorinn fer svo í gang, þá keyrir hann draslið of langt og festir sig...

Allavega...ég náði þessu úr hurðinni og fékk annan actuator til að prófa en þá varð fjarstýringin batteríslaus, að ég hélt, þannig að ég skipti um batterí...og programmaði fjarstýringuna við bílinn aftur með þessum leiðbeiningum en hún virkar samt ekki....fml

Vitlausar leiðbeiningar eða bilaður lykill?