Page 1 of 1

E90 Xenon Angel Eyes

PostPosted: Thu 01. Sep 2011 20:18
by Frikki
Sælir.

Núna á ég þrist sem er með hefðbundnum halogen lömpum.

Mig langar í angel eyes lampa með xenon.

Hvað geri ég og hvað þarf ég að kaupa?

Re: E90 Xenon Angel Eyes

PostPosted: Thu 01. Sep 2011 20:40
by Frikki
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/2005-200 ... 415wt_1167

Þetta lítur vel út á mynd en er þetta ekki bölvað drasl? Kostar svakalega lítið.

Þarf ég ekki að kaupa hefðbundna projectors / lamps og setja svo angel eyes xenon perur í?

Hvernig eru rafmagnstengingar, eru þær öðruvísi úr halogen og xenon?

Re: E90 Xenon Angel Eyes

PostPosted: Thu 01. Sep 2011 20:51
by Frikki
Image

http://www.e90post.com/forums/showthrea ... +plug+play

Búinn að finna það sem mig vantaði en vitiði hvort svona fáist á Íslandi? Annars pantar maður bara af netinu.

Re: E90 Xenon Angel Eyes

PostPosted: Thu 01. Sep 2011 23:22
by ppp
En þessi ljós á síðustu myndini eru ekki með projectors?

Ég myndi ekki vera spandera í eitthvað sem hefur ekki projectors. Annars ertu bara með halogen lookið.

Re: E90 Xenon Angel Eyes

PostPosted: Thu 01. Sep 2011 23:24
by Frikki
Heyrðu já það er rétt, það eru bara einhverjir angel eyes hringir, ég vill klárlega hafa projectors!

Hvar er best að kaupa þetta og endilega koma með linka á síður erlendis ef þetta fæst ekki heima.

Re: E90 Xenon Angel Eyes

PostPosted: Fri 02. Sep 2011 01:25
by IceDev
Þú ert ekki að fara að taka xenon ljós með projectors undir 500$, svo mikið er víst. Þú verður að vera reiðubúinn til að eyða a.m.k 100k í þetta ef þú vilt ná þessu almennilegu.

Ég get einnig fullvissað þig um að þú fáir þetta ekki hérlendis. Jafnvel þótt að þér býðst að kaupa það hérna þá mun það kosta þig tvöfalt á við að kaupa þetta sjálfur.

Ef þú, frændi góður ert reiðubúinn að spandera slíkri upphæð í Xenon þá skal ég glaður aðstoða þig við slík herlegheit. Ég býst nú samt við að þú viljir ekki eyða slíkum fjármunum í eitthvað sem þú munt aldrei fá til baka við endursölu

Re: E90 Xenon Angel Eyes

PostPosted: Fri 02. Sep 2011 10:56
by Frikki
Já sæll, þá spái ég ekki meira í það :alien:

Re: E90 Xenon Angel Eyes

PostPosted: Fri 02. Sep 2011 10:57
by Frikki
En hvernig græja ég þá halogen angel eyes?

Það getur ekki kostað mikið eða er ekki venja að það sé angel eyes í halogen lömpum?

Re: E90 Xenon Angel Eyes

PostPosted: Fri 02. Sep 2011 12:07
by ppp
Frikki wrote:En hvernig græja ég þá halogen angel eyes?

Það getur ekki kostað mikið eða er ekki venja að það sé angel eyes í halogen lömpum?


Ég man ekki hvað ég borgaði mikið fyrir mína, en einhver sagði (kostnaður úr erlendu búð + sendingakostnaður til íslands) * (1,55 tollar og gjöld) = gróflega lokaverð.