Page 1 of 1

Bilaðar græjur í E65... Surprise! :)

PostPosted: Tue 30. Aug 2011 23:40
by BMWaff
Það er greinilega ekki "mikið" um E65/66+ hluti að finna á netinu hérna flest fyrir eldri bílana þannig að þetta er kanski frekar strembið. En ég keypti bílinn með bilað hljóð bílstjórameginn sem virðist vera frekar algengt vandamál í sjöum þar sem þetta er 4x bíllinn sem ég veit af með svona vesen.

En spurninginn er, hvert best er að fara til að fá upplýsingar um græjurnar. Þetta er massa flókið en ég er búinn að rífa græjurnar úr og kíkja á snúrurnar og sýnist bara koma ljós á "hægri" optical snúruna... Sem þíðir væntanlega að eitthver staðar í "hringnum" er eitthvað component bilað eða snúran.

Hefur eitthver staðið í þessu áður hérna?

Re: Bilaðar græjur í E65... Surprise! :)

PostPosted: Wed 31. Aug 2011 07:06
by slapi
Ef að það kemur hljóð úr græjunum er ekkert að ljósleiðaranum , það sem gerist þegar þú tekur ljósið frá græjunum þá ertu nátturulega búinn að rjúfa hringinn og ljósið heldur nátturulega ekkert áfram.
Algengasta bilunin í þessu er útgangurinn í tækinu sjálfu sem bilar en það þyrfti að mæla það til að fullvissa sig um bilunina þar.

Re: Bilaðar græjur í E65... Surprise! :)

PostPosted: Wed 31. Aug 2011 10:39
by BMWaff
Þannig að það borgar sig að láta þá hjá Eðalbílum skoða þetta?

Re: Bilaðar græjur í E65... Surprise! :)

PostPosted: Wed 31. Aug 2011 17:35
by Axel Jóhann
jámm

Re: Bilaðar græjur í E65... Surprise! :)

PostPosted: Fri 02. Sep 2011 11:21
by Stefan325i
Getur þú svissað snúrunum hægri vinstri, fært bílstjóra meginn yfrir farþeiga meginn og séð hvort að bilunin færist með.

Re: Bilaðar græjur í E65... Surprise! :)

PostPosted: Fri 02. Sep 2011 17:17
by BMWaff
Ég talaði við Tómas hjá Eðal og ætla að reyna að fara til hanns í næstu viku og láta reyna á að tengja þær saman þangað til ég "finn" annan geislaspilara. Hann var nokkuð viss um að það væri hann.

Helvítis kvikyndið kostar víst 240þ. hjá IH sem er ágætis upphæð fyrir "geislaspilara" (og þó hann geri aðeins meira en spila diska)....

Heyri hvað hann segir með þetta...