Page 1 of 1

[e46] Skrítið hljóð þegar ég set loftkælinguna á.

PostPosted: Thu 18. Aug 2011 13:38
by Jónas Helgi
Ég fór með bílinn minn í ástandskoðun í gær hjá Eðalbílum.

Ég sjálfur hef alldrei sett loftkælinguna á miðstöðina síðan ég hef átt bílinn ( :drool: )
En maðurinn sem skoðaði hann tók eftir hljóði sem hann hafði alldrei áður heyrt þegarhann setti í gang loftkælinguna.

Hljóðið lýsir sér eins og ef maður væri með samanþjappað loft eða gas í brúsa og sprayaði því. Eða eins og það sé gat á slöngu sem er að leka.

Einhverjar hugmyndir ?

Re: [e46] Skrítið hljóð þegar ég set loftkælinguna á.

PostPosted: Thu 18. Aug 2011 17:00
by slapi
Þetta hljóð er týpískt þegar lítið er á kerfinu en ekki nægjanlega lítið svo hann kveikji ekki á því.

Frystikerfi
Alkul

Þessi fyrirtæki geta mælt á þessu fyrir þig

Re: [e46] Skrítið hljóð þegar ég set loftkælinguna á.

PostPosted: Thu 18. Aug 2011 17:37
by Jónas Helgi
slapi wrote:Þetta hljóð er týpískt þegar lítið er á kerfinu en ekki nægjanlega lítið svo hann kveikji ekki á því.

Frystikerfi
Alkul

Þessi fyrirtæki geta mælt á þessu fyrir þig


Takk kærlega slapi.

Ég hringdi niðureftir og þeir sögðu að þetta gæti verið margt en sögðu að þetta væri örugglega þetta sem þú sagðir.

Takk ;)

Re: [e46] Skrítið hljóð þegar ég set loftkælinguna á.

PostPosted: Thu 18. Aug 2011 22:31
by ömmudriver
Þú verður að kveikja reglulega á AC til þess að halda því í lagi, hreyfa pressuna og "smyrja" kerfið.

Re: [e46] Skrítið hljóð þegar ég set loftkælinguna á.

PostPosted: Mon 22. Aug 2011 20:36
by maggib
ömmudriver wrote:Þú verður að kveikja reglulega á AC til þess að halda því í lagi, hreyfa pressuna og "smyrja" kerfið.


Laukrétt!!! alltaf að setja í gang reglulega, líka á veturna!!!
ég vinn við þetta svo þú getur bara komið til mín!! :mrgreen: