Page 1 of 1
Miðstöðin dottin út í z3

Posted:
Fri 12. Aug 2011 09:50
by Zed III
z3 stóð í nokkra mánuði og þegar hann datta aftur á götuna var miðstöðin að detta inn og út. Hún virkaði stundum á öllum hröðun en var að detta inn og út. Í gær datt hún svo alveg út. Þegar hún var inni blés hún heitu og köldu án vandræða.
Gæti þetta mögulega verið sambandsleysi í rofa eða er kannski relay fyrir þetta ?
Re: Miðstöðin dottin út í z3

Posted:
Fri 12. Aug 2011 19:09
by Lindemann
ég myndi skjóta á miðstöðvarmótor..... þetta hljómar þannig.
mældu hvort það komi straumur að mótornum(ættir að fá 12v á mesta hraða)
Re: Miðstöðin dottin út í z3

Posted:
Mon 15. Aug 2011 14:21
by Zed III
takk fyrir það.
Byrja á öryggjum og vinn mig þaðan.
ef það er mótorinn þá er þetta sami partur og í e30 þ.a. það ætti að vera hægt að finna þetta ódýrt.
Re: Miðstöðin dottin út í z3

Posted:
Mon 15. Aug 2011 15:12
by Einarsss
haha, miðstöðvarmótor er eftirsótt vara í e30

Ég keypti allt nýtt í miðstöðina hjá mér 2008 og kostaði 60k heimkomið þá
Re: Miðstöðin dottin út í z3

Posted:
Mon 15. Aug 2011 15:17
by Zed III
dam,
hélt að þetta væri til í hverjum skúr

var bilanalýsingin hjá þér svipuð og hjá mér, þ.e. datt inn og út og svo bara alveg kapútt ?
Re: Miðstöðin dottin út í z3

Posted:
Mon 15. Aug 2011 15:23
by Einarsss
nei, þurfti að skipta um hitaelementið hjá mér ásamt að það var komið leiðinda ískur í mótorinn þannig að ég sló til og verslaði allt nýtt í þetta

En ég myndi skjóta á miðstöðvarmótstöðuna.. einfalt og cheap fix

amk einfalt að komast að henni í e30
Re: Miðstöðin dottin út í z3

Posted:
Mon 15. Aug 2011 15:28
by Zed III
mér skilst reyndar á því sem ég hef lesið að þetta sé mótstöðin þegar allt virkar á hæstu stillingu en ekki á þeim á milli. Það þarf þó ekki að vera rétt.
Annars er það næsta tékk á eftir öryggjum að skoða mótstöðuna.
Skyldi vera mikið mál að komast að þessu ef ég vill beintengja mótorinn við rafgeymi ?
Re: Miðstöðin dottin út í z3

Posted:
Mon 15. Aug 2011 15:42
by Einarsss
Þekki þetta ekki á Z3 en á e30 er bara hólf á hvalbaknum sem er opnað og þá kemstu að mótornum, eflaust svipað í z3
Re: Miðstöðin dottin út í z3

Posted:
Mon 15. Aug 2011 15:46
by Zed III
Ég skoða það.
Takk fyrir aðstoðina.
Re: Miðstöðin dottin út í z3

Posted:
Tue 16. Aug 2011 13:21
by T-bone
það er lika vandamal með þetta i e30 hja mer. Hun for að virka bara a fullum blæstri, og svo er hun farin að detta alveg ut nuna bara. Eg ernalveg viss um að það er motstaðan hja mer. A bara eftir að finna svoleiðis. Svo veit eg ekki hvort að eg er bara klaufi eða hvað, en eg bara næ henni omögulega ur bilnum hja mer

Re: Miðstöðin dottin út í z3

Posted:
Tue 16. Aug 2011 13:38
by Zed III
ef hún virkar bara á full blast hjá þér er það örugglega mótstaðan.
Ég smellti mér á hraðahindrun áðan og miðstöðinn datt inn hjá mér þ.a. þetta gæti verið sambandaleysi hjá mér.
Re: Miðstöðin dottin út í z3

Posted:
Tue 16. Aug 2011 20:12
by GunniT
Zed III wrote:ef hún virkar bara á full blast hjá þér er það örugglega mótstaðan.
Ég smellti mér á hraðahindrun áðan og miðstöðinn datt inn hjá mér þ.a. þetta gæti verið sambandaleysi hjá mér.
Eða kolin í miðstöðvarmótorinum búin eða föst..
Re: Miðstöðin dottin út í z3

Posted:
Wed 17. Aug 2011 09:01
by Zed III
GunniT wrote:Zed III wrote:ef hún virkar bara á full blast hjá þér er það örugglega mótstaðan.
Ég smellti mér á hraðahindrun áðan og miðstöðinn datt inn hjá mér þ.a. þetta gæti verið sambandaleysi hjá mér.
Eða kolin í miðstöðvarmótorinum búin eða föst..
Væri þetta svarið við því ?
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/BMW-Heater-Blower-Motor-Rebuild-Kit-Brushes-E30-/110454908358?pt=Motors_Car_Truck_Parts_Accessories&hash=item19b7a025c6#ht_2487wt_937